Ægir - 01.03.1997, Page 19
Ágúst Guðmundsson, framkvæmdastjóri rækjuverksmiðjunnar
Dögunar á Sauðárkróki:
Islenskur rækjuiðnaður stendur
mjög framarlega
„Ég hef trú á aö í rækjuibnaðinum
ver&i áframhaldandi vélvæhing á
næstu mánuðum og árum. Hún hef-
ur veriö mikil á undanförnum árum
og hún snýr að því að vanda frekar
meðferð á vörunni," segir Ágúst Gub-
mundsson, framkvæmdastjóri rækju-
verksmiðjunnar Dögunar á Sauðár-
króki, en verksmiðjan er einmitt ein
þeirra í rækjuibnaðinum sem hafa
lagt í fjárfestingar í framleiðslunni.
Milli sex og átta hundruð
manns í rækjuiðnaðinum
Þegar talað er um landvinnslu á
fiski vill umræðan mjög gjarnan
snúast mest um botnfiskvinnsluna
enda kannski eðlilegt í Ijósi þess
hversu mikinn sess hún hefur skip-
að í landvinnslunni fram til þessa.
Rækjuiðnaðurinn skapar líka mörg
störf í landi og segja má að á síð-
ustu tveimur árum hafi verið nokkur
stöðugleiki hvað varðar fjölda
rækjuframleiðenda og þeirra starfa
sem starfsemi þeirra skapar.
Rækjuiðnaðurinn hefur verið mjög
erfiður í gegnum árin, gjaldþrot
fyrirtækja tíð en síðustu tvö árin
hefur þó verið minna um slíkt.
Samkvæmt athugun Ægis er
ekki óvarlegt að áætla að heilsárs-
störf í rækjuiðnaði á Islandi séu á
bilinu 6-800. Starfsfólkið er samt
töluvert fleira þar sem mikið er um
hlutastörf. Framleiðendurnir hafa að
undanförnu verið á bilinu 21-24 en
erfitt er að skilgreina fjöldann þar
sem sumir framleiðendur hafa fleiri
en eina verksmiðju.
Hjá Dögun voru lagðar um 20 millj-
ónir króna í síðustu breytingar en
kostnaðarsamar breytingar koma
samt sem áður til með að skila sér.
„Þetta miðar allt ab því að fá betri
framleiðslu og betri vöru, meiri gæð-
um," segir Ágúst. Hann segir þróunina
koma til meb ab halda áfram enda taki
vélbúnaðurinn og tæknivæðingin sí-
felldum framförum. Sú spurning vaknar
hversu langt borgi sig að ganga í kostn-
aðarsamri tækniuppbyggingu.
„Mörkin liggja einhvers staðar en
það er erfitt að segja hvar þau eru.
Breytingin var til dæmis mikil þegar
nýja hreinsivélin kom en hún byggir á
nýrri tölvu- og ljósmyndunartækni og
þessi búnaður hreinsar rækjuna, kastar
frá þeirri rækju sem er eitthvað óeðlileg.
Þessi tæki komu fyrir einu ári síðan en
þróunin heldur stöbugt áfram."
Sveiflukenndur iðnaður
Ágúst bendir á að rækjuiðnaðurinn sé
mjög sveiflukenndur. Síbasta áfall var
þegar offrambob olli verðhruni á Evr-
ópumarkaði en hann
segir að nú að undan-
förnu hafi salan auk-
ist á ný.
„Það lítur út fyrir
að framleiðsla þessa
árs verbi minni en
eftirspurnin þannig
að birgðir muni
minnka og verðiö lík-
lega hækka í kjölfar-
ið. Margt bendir því
til þess að árið 1997
verði þokkalegt í
rækjuvinnslunni og
ekkert fráleitt að upp-
sveifla geti orðib á
næsta ári ef allt gengur eðlilega fyrir
sig," segir hann.
Gæðaframleiðsla frá
verksmiðjunum
Ágúst telur ab íslenskur rækjuiðnaður
standi mjög framarlega. Greinin hafi
fylgt eftir tæknivæðingu og gæði fram-
leiðslunnar séu orðin mjög góð. Á tím-
um þegar mikið er talað um fullvinnslu
sjávarafurða þá er eðlilegt að spyrja
hversu langt rækjuiönaðurinn mun
ganga á þeirri braut.
„Stór hluti markaðarins er veitinga-
húsamarkabur og hann er mjög góður.
Ég býst við að margir haldi sig við þann
markað en þróunin til frekari vinnslu
mun samt sem áður verða. Til dæmis er
verksmiðjan á Húsavík að pakka í sér-
pakkningar fyrir stór vöruhús í Bret-
landi þannig að sérvinnsla er þegar til
stabar í rækjuiðnaðinum. En ég sé fyrir
mér ab stærstur hluti framleibslunnar
verði áfram seldur til veitingahúsa og
endursölufyrirtækja í Evrópu, segir
Ágúst Guðmundsson.
SKOÐUN OG VIÐGERÐIR
GÚMMÍBÁTA.
EINNIG SKOÐUN OG
VIÐGERÐIR BJARGBÚNINGA
GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN
Eyjaslóð 9 • Orfisey • sími 91-14010 • fax 91-624010
ÆGIR 19