Ægir - 01.03.1997, Síða 25
stig á milli hrávinnslu og fullvinnslu og
það er miklu eðlilegra fyrir okkur að
feta okkur áfram í þessu smátt og
smátt. Dæmin fyrir vestan sýna okkur
það svo ekki verður um villst."
í þekkingarleit erlendis
Aðspurður um markaðssetningu á sjáv-
arafurðum segir Þorgeir hana að verða
mun faglegri nú, þátttaka á sýningum
erlendis fari sífellt vaxandi og menn
taki vinnu sína á sýningum miklu al-
varlegar en áður. Hann segir fyrirtækin
leggja meiri áherslu á að kynna sig fyr-
ir sýningar og síðan sé varan glæsileg
og kynningarefnið gott. Að sýningun-
um loknum sé þeim síðan fylgt eftir
með markvissum hætti.
„Fagmennskan í útflutningi er meiri
en ábur og það er mjög áberandi
hversu fyrirtækin eru farin að sækjast
eftir aukinni markaðsþekkingu. íslensk
fyrirtæki senda fulltrúa sína utan á sýn-
ingar í stórum stíl þar sem þeir kynna
sér hvað er ab gerast í greininni og þefa
uppi það nýjasta á markaðnum."
Þorgeir nefnir sýninguna í Brussel
sem dæmi um þetta en hún mun vera
stærsta sjávarafurðasýning í Evrópu.
Þangað segir hann um tvö til þrjú
hundruð íslenska gesti hafa farið á síð-
asta ári og áberandi sé hversu mikið
menn séu farnir að sækja í þessa þekk-
ingu í sambandi vib vinnsluna. Ekkert
sé óeðlilegt við það í dag að fram-
leiöslustjóri eða þeir sem starfi í vinnsl-
unni sjálfri sæki sjávarafuröasýningar
til þess að kynna sér hvað sé nú verið
að gera, t.d. í því að blanda saman hvít-
fiski og laxi í flakarúllum, fylltum með
t.d. spínati.
Hættulegt að seilast of langt
„Við þurfum að vera vel vakandi fyrir
samkeppni frá öðrum löndum. Við selj-
um 65-75% af sjávarafurðum okkar í
Evrópu og við þurfum að átta okkur á
því að í samkeppnislöndum okkar er
geysileg hefb fyrir matvælaframleiðslu,
t.d. hjá Þjóðverjum, Bretum og Dön-
um. Þessar þjóðir vinna á allt öðrum
forsendum en vib og þarna erum við
oft á tíðum að glíma við mjög stór
sölusamtök og stórar verslunarkeðjur.
Við þurfum að aðlaga vinnsluna því og
það er alls ekki alltaf raunhæft ab ætla
að selja vörur í nafni íslensks fyrirtækis
á þetta stórum markaði. Ef við í ein-
hverjum tilfellum getum framleitt t.d.
undir nafni Max og Spencer þá eigum
„Þurfum að átta okkur á
pví að í samkeppnis-
löndum okkar er
geysileg hefð fyrir
matvœlaframleiðslu"
við vitaskuld ekki að hika við það. Við
veröum að horfa raunhæft á markaö-
inn og vinna samkvæmt því. Bjartsýni
er nauðsynleg og sjálfstraust gott en
það getur orðið okkur að falli ab ætla
okkur of stóran bita," segir Þorgeir.
Matvælafræðingar inni á gólfi
í frystihúsunum
í framtíbinni sýnist Þorgeiri sem sam-
eining fyrirtækja muni leiða af sér mjög
sterk fyrirtæki sem ráði yfir veiðum,
vinnslu og öflugu markaðs- og sölu-
kerfi. Hann segir að markabsþekking
og markaðstengsl muni í auknum mæli
koma inn í þessi fyrirtæki, hvort sem
selt verði í gegnum sölusamtök eða
ekki, og vinnslan sjálf verði mark-
aðstengdari.
„Við þurfum að auka hlutfall
menntaðs starfsfólks í matvælafræðum
inni í fyrirtækjunum sjálfum. Matvæla-
fræöingar þurfa að koma inn á gólfið í
frystihúsunum og þeir þurfa að sjá um
vöruþróunina. Fyrirtækin ætla sér að
styrkja sig á markaðssviðinu og fá
markaðsþekkinguna inn í vinnsluna og
það tel ég vera eitt af lykilatriöunum í
samkeppni okkar þegar vib horfum
fram á veginn," segir Þorgeir Pálsson,
forstöðumaöur sjávarútvegssviðs hjá
Útflutningsráði.
HAGGLUNDS DRIVES
Vökvamótorar
Afl sem tekur lítið pláss. - Tengist beint á vindur eða
iðnaðarvélar. - Snúningsátak allt að 150.000 Nm.
Mótorar á lager.
Hönnum vökvakerfi. Viðgerðar og varahlutaþjónusta.
Spilverk -
Sig. Sveinbjörnsson ehf.
Skemmuvegi 8, Sími 544-5600 Fax: 544-5301
ÆGIR 25