Ægir - 01.03.1997, Side 26
Hugmyndin sem
varð Ektafiskur
Útgeröar- og fiskvinnsluíyrirtækið Trausti hf. á Hauganesi byrjaði fyrir fjórum
árum aö framleiba útvatnaban saltfisk í neytendaumbúðir undir vörumerk-
inu Ektafiskur. Þessi ákvörðun var mikib happaskref fyrir fyrirtækið og full-
yrbir Elvar Jóhannesson, einn eigenda Trausta hf., að framleibslan hafi gert
að verkum að fyrirtækib hafi getað haldið uppi fullri vinnu fyrir starfsfólk á
sama tíma og kvótinn þrengdi að. En nýjungarnar hjá fyrirtækinu felast ekki
bara í þróun saltfiskafurba heldur er fyrirtækib nýbyrjab að flytja hörpudisk á
Bandaríkjamarkað og er hörpudiskurinn veiddur í Eyjafirði.
„Við höfum staöið hér nánast daga
og nætur og handpillað hörpudiskinn
sem síðan er sendur ferskur á Banda-
ríkjamarkab. Þarna er mikil eftirspurn
eftir framleiðslunni og mjög langt frá
því að við getum annað henni," segir
Elvar í samtali vib Ægi. Hann segir að
verbið nægi til að standa undir öllum
kostnaði með hæfilegri sjálfboðavinnu
eigenda þannig að segja megi að þessi
vinnsla gangi, sér í lagi þegar annars
væri hlé í saltfiskvinnslunni á meban
bátur fyrirtækisins er í slipp.
„Eg er að vona að á þessu geti orðið
framhald hjá okkur en þab byggist á ab
menn verði ekki svo vitlausir að setja
heilan iíota á þetta. Það eru ekki nema
tveir blettir í Eyjafirði þar sem hörpu-
diskur hefur fundist þannig ab magnið
er mjög lítið en fyrir svona handpillun
þarf heldur ekki mikið þannig að fólk
hafi vinnu," segir Elvar. Sjávarútvegs-
ráðuneytið gaf leyfi til hörpudiskveið-
anna í Eyjafirði í tilraunaskyni en mjög
lítið af hörpudiski hafði áður verið veitt
og unnið vib fjörðinni.
Elvar Jóhannessoti með hörpudisk sem
nokkrwn klukkustundum síöar lagði upp í
ferð á markaði í Bandaríkjunum.
Gramdist að sjá
meðferðina á saltfiskinum
Eins og áður segir byggir Trausti hf. á
saltfiskverkun og þungamiðjan er fram-
leiðsla undir vöruheitinu Ektafiskur. Nú
í janúar fór á erlendan markað stærsta
sending fyrirtæksins til þessa, 9 tonn,
sem dreift var í verslanir á Spáni. Þessi
framleiðsla dugar í rösklega mánaðar
vinnu fyrir þá 8-10 starfsmenn sem
starfa hjá Trausta hf. og segir Elvar það
sýna hversu mikilvæg hver svona send-
ing sé fyrirtækinu.
„Okkur hafði dreymt um það í mörg
ár og raunar alveg frá því að vib vorum
pollar að gera meira úr saltfiskinum.
Vib horfðum á fiskinn fluttan út í 50
kílóa strigapokum og meðferðin var
með miklum ólíkindum. Og raunar
hefur lítið breyst í saltfiskútflutningn-
um nema að í stab strigapokanna eru
komnir pappakassar og síðan em flutt-
ar út heilar stæður á brettum. Þegar
kvótinn fór að minnka sáum við að hér
varð eitthvað ab gera til ab búa til meiri
verðmæti og þannig kviknaði hug-
myndin að Ektafiskinum. Vib ákváðum
að byrja smátt og vorum með frum-
stæða abstöðu í fyrstu á meðan við vor-
um að meta hvort tilraunin tækist. í
stuttu máli má segja að framleiðslan
hafi gengiö svo vel í landann ab nú
höfum við á síðustu misserum fjárfest í
Þrátt fyrir að mikil vinna sé við handpillun á hörpudiski segja forsvarsmenn Trausta hf. að
þessi verkun borgi sig, sérstaklega þegar rólegra er í saltfiskverkuninni.
26 ÆGIR