Ægir - 01.03.1997, Side 27
húsnæði og búnaði fyrir um 12 milljón-
ir króna.
- Má segja að þið hafi náö að tryggja
fyrirtækið og störf fólksins með því að
taka upp þessa nýju framleiðslu?
„Já, það er engin spurning. Fyrirtæk-
ið sem slíkt er ágætlega sterkt en fram-
leiðslan hefur gert að verkum að hér er
starfsemi í húsunum allt árið um kring.
Á þann hátt hafa störfin verið tryggð,"
svarar Elvar.
Fjölbreytnin meiri
I upphafi var byrjað að pakka í neyt-
endaumbúðir beinlausum saltfiski með
roði og alltaf hefur verið lögð áhersla á
að neytandinn þurfi lítið annað fyrir
matreiðslunni að hafa en koma stykkj-
unum í pottinn. Smám saman hefur
„Ég er viss um að
menn eru alltof
svartsýnir í
landvinnslunni."
fjölbreytnin í framleiðslunni orðið
meiri og auk þess hafa nýjar vöruteg-
undir litið dagsins ljós undir Ekta-
fisksvörumerkinu, t.d. útvötnuð þunn-
yldi af stórum þorskum, sjófrystir
ýsubitar, rækjur, kinnfiskur, gellur og
siginn fiskur.
„Við erum líka komnir með hörpu-
disk á innanlandsmarkaðinn, til viðbót-
ar við útflutninginn, við pökkuðum
skötu í neytendaumbúðir fyrir jólin og
svo framvegis. Við reynum því af
fremsta megni að hafa framleiðsluna
sem fjölbreyttasta og ýmsar hugmyndir
krauma enn í okkur," segir Elvar.
Ekki síðri þróun hjá
minni vinnslunum
Elvar segir að ekki þurfi endilega að
Margt nýtt reynt
Markaðssetningin á framleiðsluvörunni Ektafiski hefur gengið framar vonum og
útvötnuðwn saltftski var fylgt eftir með fleiri tegundwn. Eitt afþví nýjasta sem fyrir tœkið
er að reyna í útflutningi þessa dagana er útflutningur á frosinni gotu sem hér er ípökkun.
horfa til stærri fiskvinnslufyrirtækjanna
þegar talað er um þróun í framleiðslu
fiskafurða.
„Minni aðilarnir eru ekki síður að
gera góða hluti. Við höfum undanfarið
ár átt ágætt samstarf við þróunardeild
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og
þeir hafa verið að kynna vöru frá okkur
fyrir hugsanlegum kaupendum. Á sama
tíma höfum við líka komist beint inn á
markaði á Spáni þannig að lítil vinnsla
eins og þessi getur komist áfram og
fundið sér markaði fyrir framleiðslu
sína. Við seljum i gegnum íslending
sem er búsettur á Spáni og þrátt fyrir að
markaðsstarfið hafi verið erfitt og kostn-
aðarsamt þá virðist það ætla að ganga,"
segir Elvar.
Hærra verð í útflutningi
en á heimamarkaði
Fimm ár er ekki langur tími en athyglis-
vert er hve mikill vöxtur hefur orðið í
framleiðslu Trausta hf. á ekki lengri
tíma. Elvar segist alltaf hafa verið þess
fullviss að framleiðslan gengi upp en nú
sé komið að þeim tímapunkti að horfa
meira til útflutnings en áður.
„Innanlandsmarkaðurinn tekur ekki
við meiru af þessari vöru og útflutning-
urinn er það sem við einblínum á. Við
höfum eftirspurn eftir miklu mun meira
magni en viö höfum sent út en okkar
grundvallarskoðun er sú að framleiða
minna en selja á hæsta mögulega verði.
Reynslan er líka sú að við erum að fá
hærra verö erlendis en hér á innan-
landsmarkaði," segir Elvar.
Menn eru of svartsýnir
Elvar teiur umræðuna um svarta fram-
tíð landvinnslunnar óþarflega nei-
kvæða.
„Ég er viss um að menn eru alltof
svartsýnir í landvinnslunni. í það
minnsta hvarflar það ekki að okkur að
leggja árar í bát. Spurningin snýst um
hve menn eru opnir og fljótir að nýta
sér glufur sem myndast hér og þar.
Framleiðendur verða að vaka yfir því
sem markaðurinn vill og vera fljótir að
taka við sér en samt er þetta til lítils ef
menn ekki framleiða góða vöru. Fram-
leiðslan sjálf má aldrei bregðast en
menn mega heldur ekki fara of hratt.
Uppbyggingin verður að vera sam-
kvæmt því sem markaðurinn og salan
leyfir. Þannig fórum við af stað og
búum að því," segir Elvar.
ægir 27