Ægir - 01.03.1997, Page 33
TÆKNI OG ÞJÓNUSTA
Uiniið að smíði pönnuflokkunarkerfis fyrir fsfélagið í Vestmannaeyjum. Landssmiðjan
hefur einnig í vaxandi mceli sótt á erlenda markaði með framleiðslu sína og teiur Björn
jóhannsson að þar séu mörg sóknarfœri efrétt sé spilum haldið í baráttunni.
hafa menn ekki aðra valkosti þar
en,annaðhvort að gefast upp eða spýta í
lófana og gera eitthvað. íslendingar
hafa ekki verið þekktir fyrir að gefast
upp og við finnum að menn ætla sér
ekki að gefast upp heldur finna leiðir út
úr vandanum," segir Björn um stöðu
landvinnslunnar þessa dagana. Hann
telur að íslendingar standi nú við upp-
haf á nýju þróunarstökki í landvinnsl-
unni enda hafi þrengingar alltaf leitt af
sér nýja þróun og nýja möguleika.
„Fiskvinnslan gengur alltaf í bylgjum og
til að mynda tók ég þátt í því fyrir tíu
árum að þróa flaeðilínumar sem lögðu
niður að mestu einstaklingsbónusinn
en í staðinn kom hópbónusinn. Nú þarf
að taka aftur upp einstaklingsbónus
með breyttum forsendum til að ná upp
þeim vinnsluhraða sem óhjákvæmilega
fylgir einstaklingsbónusinum. Þetta
þýðir ekki að menn séu að hverfa aftur í
tímann heldur hefur tölvutæknin og
þróun tækjabúnaðar opnað nýja mögu-
leika á hlutum sem ekki voru fram-
kvæmanlegir fyrir 10 árum. Ég segi því
óhikað að það séu skemmtilegir og
spennandi tímar framundan í land-
vinnslunni," segir Björn.
Eðlilegt að endurnýja búnaðinn
Björn segir ekkert óeðlilegt við að fisk-
vinnslufyrirtæki muni skipta ört út
tækjabúnaði, jafnvel mjög nýlegum
búnaði. Afskrifa verði tækin mjög hratt
og endurnýja þau að sama skapi til að
mögulegt sé að fylgja eftir þróun sem
markaðirnir kalli á. Aðeins þannig geti
menn unnið gegn því að landvinnslan
sem slík verði afskrifuð hér á landi, eins
og mikið hefur verið rætt um. Björn tel-
ur fullvinnsluumræðuna nokkuð vill-
andi og segir spurninguna snúast um að
vinna á hverjum tíma úr fiskinum verð-
mætustu vörurnar.
„í sumum tilfellum geta menn verið
að tala um minni vinnslu en meira
verðmæti. En hvað varðar fullunna rétti
með sósu og kartöflum í matarbökkum
þá er ekki alveg komið að þeirri vinnslu
enn hér á landi en farið að styttast í
hana. Við höfum töluvert skoðað slíka
vinnslu og teljum okkur í stakk búna að
mæta óskum frá vinnslunum þegar þær
koma," sagði Björn Jóhannsson.
Nýr hleri sýndur í Aberdeen
Toghleraframleiðandinn J. Hinriksson hf. var meöal þeirra
íslensku fyrirtækja sem sýndu á sjávarútvegssýningunni í
Aberdeen í Skotlandi um miðjan mánuðinn. Birgir
Jósafatsson, einn eigenda fyrirtækisins, segist ánægður
með sýninguna, bæði hafi verið gerðir sölusamningar á
stórum toghlerum í rækjutogara í Færeyjum og einnig
komist á tengsl við nýja aðila sem kunni að leiða af sér
viðskipti síðar á árinu.
„Við seldum stórt hlerapar í togarann Sólborgu í
Færeyjum en hvor hleri um sig er 3,8 tonn þannig að
þetta er alvörustærð. Þetta eru nýir V-hlerar frá okkur,
Concorde en við höfum ekki haft þá áöur á sýningum
erlendis. Við vorum búnir að koma einu pari út fyrir
sýninguna og þeir eru í notkun nálægt Aberdeen og hafa
gert lukku. Mér sýnist 3-4 aðilar vera mjög heitir fyrir
kaupum á hlerum af þessari gerð," sagði Birgir í samtali
við Ægi.
Hann segir að á sýningunni hafi komið mjög álitlegar
fyrirspurnir frá útgeröaraðilum í Hollandi en þar munu
vera tvö stór útgerðarfyrirtæki sem gera út öflug togskip.
„Það er alveg nýtt fyrir okkur að fá fyrirspurnir frá
Hollandi en þessir aðilar eiga marga stóra togara sem eru
mikið á flottrolli og sýna okkar framleiðslu áhuga fyrir sín
skip," sagði Birgir.
ÆGIR 33