Ægir - 01.03.1997, Síða 37
Tæknilegar stærðir (hvor togvinda);
Tromlumál 325 mm x 1490 mm x 800 mm
Víramagn á tromlu 2000 m af 24 mm vír
Togátak á miðja (800 mm) tromlu 8.0 tonn (lægra þrep)
Dráttarhraði á mibja (700 mm) tromla 80 m/mín (lægra þrep)
Vökvaþrýstimótor MG 6300-B
Afköst mótors 122 hö
Þrýstingur 40 bar
Olíustreymi 1175 1/mín
ur eins manns klefum. íbúbir eru á
tveimur hæðum framskips, þ.e. á neðra
þilfari og á efra þilfari í aðskildum þil-
farshúsum.
Nebra þilfar: í íbúöarými á neðra þil-
fari er fremst bakborðsmegin einn fjög-
urra manna klefi, og einn tveggja
manna klefi. Aftan við hann er þvotta-
og hlífðarfataherbergi með salernisklefa
og sturtuklefa.
Efra þilfar: í s.b. þilfarshúsi er fremst
tveir tveggja manna klefar, þá snyrting
með salerni og sturtu og aftast einn
tveggja manna klefi. í b.b. þilfarshúsi er
fremst tveggja manna klefi, þá snyrting
með salerni og sturtu, þar fyrir aftan
borbsalur og setustofa (samtengt), eld-
hús og aftast er matvælageymsla.
íbúbir eru einangraðar með steinull
og klæddar meb plasthúðuðum plötum.
Fiskvinnslurými á neðra þilfari
Móttaka: Framan vib skutrennu er
vökvaknúin tvískipt fiskilúga sem veitir
aðgang að fiskmóttöku, um 17 m3 ab
stærð, aftast á vinnuþilfari. í efri brún
skutrennu er vökvaknúin skutrennu-
loka. Fiskmóttöku er skipt í tvo geyma
og er hleypt úr henni um tvær vökva-
knúnar lúgur á framþili.
Vinnslubúnabur: Skipið er búið
rækjuvinnslubúnabi frá Carnitech. Bún-
aður er til flokkunar, suðu, pökkunar og
frystingar. Tvær flokkunarvélar eru af
gerðinni BSL-M, 1 stk rækjusjóðari af
gerð OA60/3 og 1 stk rækjusjóðari af
gerðinni CT-1112, allt frá Carnitech,
fjórar Pólsvogir af gerðinni S-125 og ein
bindivél frá Strapack af gerðinni SS80-
MD.
Frystibúnaöur: í skipinu eru eftirtal-
in frystitæki: Einn láréttur 16 stöbva
Jackstone plötufrystir, sem afkastar 4
tonnum á sólarhring. Tveir lausfrystar
frá Carnitech. Annar afkastar 10 tonn-
um á sólarhring en hinn 13 tonnum á
sólarhring.
Loft og síður vinnuþilfars eru ein-
angrub meb steinull og klædd með
plasthúöuöum krossviðsplötum.
Fiskilestar (frystilestar)
Almennt: Lestarými er um 350 m3 og er
búib fyrir frystingu, og er rýminu skipt
í tvö rými.
Frágangur, búnabur: Lestar em ein-
angraðar með steinull og klæddar með
krossvibi. Kæling er með kælileiðslum í
lofti lestar. Lestum er skipt í hólf með ál-
borðauppstillingu.
Lúgubúnabur, afferming: Aftan til í
aftari lest, stjórnborðsmegin, er eitt lest-
arop með lúguhlera, og fiskilúgu og á
fremri lest er lestarop með lúguhlera. Á
efra þilfari, upp af aftari lestarlúgu á
neðra þilfari, er losunarlúga og auk þess
er samsvarandi losunarlúga á bakkaþil-
fari, s.b.-megin.
Fyrir affermingu er losunarkrani, s.b.-
megin á bakkaþilfari aftan til.
Vindu- og losunarbúnaður
Almennt: Vindubúnaður skipsins er
vökvaknúinn (lágþrýstikerfi) frá A/S
Hydraulik Brattvaag og er um að ræða
tvær togvindur (splittvindur), tvær
grandaravindur, tvær hífingarvindur,
tvær hjálparvindur afturskips og akker-
isvindu. Auk þess er skipið búið vökva-
knúnum krana frá HMF og kapstan-
vindu.
Togvindur: Aftan tii á togþilfari,
stjórnborðs- og bakborösmegin, eru
tvær togvindur (splittvindur) af gerð
DMG 6300, hvor búin einni tromlu og
knúin af einum tveggja hraða vökva-
þrýstimótor.
Grandaravindur: Fremst í gangi fyrir
bobbingarennur eru tvær grandaravind-
ur af gerð DSM 2202, hvor búin einni
tromlu (420 mm x 1200 mm x 600 mm)
og knúin af einum M2202 vökvaþrýsti-
mótor, togátak vindu á tóma tromlu er 6
tonn og tilsvarandi dráttarhraði 65
m/mín.
Óskum áhöfn og útgerð til hamingju
með veiðarfærin.
Netagerð Aðalsteins
ehf.
Klifi • 355 Ólafsvík • Sími: 436 1544
ÆGIR 37