Ægir - 01.09.1997, Blaðsíða 52
haldi áfram að rækja hlutverk sitt og
mæta sívaxandi kröfum um þekkingu
á auðlindinni er mikilvægt að styrkja
vísindalegar undirstöður starfsemi
stofnunarinnar. Tryggja þarf að völ sé
á úrvali vel menntaðs starfsfólks og í
því sambandi er mjög mikilvægt að
styrkja tengsl stofnunarinnar við
menntastofnanir. Samstarfssamningar
við Háskólann á Akureyri og Háskóla
íslands hafa því verið gerðir til að efla
slík tengsl. Huga þarf að sem bestri
nýtingu fjármagns og markvissum
rannsóknum með virkri þátttöku sjó-
manna og atvinnulífs. Einnig er mikil-
vægt að koma upplýsingum og niður-
stöðum á framfæri með skilvirkum
hætti við stjórnvöld, hagsmunaaðila
og allan almenning.
Endurnýjun skipastóls
Öflug og vel útbúin rannsóknaskip eru
ein megin forsenda þess að Hafrann-
sóknastofnunin geti í framtíðinni
gengt hlutverki sínu sem skildi. Með
þetta í huga samþykkti stjóm Haf-
rannsóknastofnunarinar í október s.l.
eftirfarandi tillögu varðandi endurnýj-
un skipastóls stofnunarinnar:
* að byggt verði nýtt 65 m langt
rannsóknaskip, áætlaður kostnaður
Jakob Jakobsson, forstjóri segir að huga
purfi að sem bestri nýtingu fjárrnagns og
markvissum rannsóknum með þáttöku
sjómanna og atvinnulífs.
1.000-1.300 millj. kr.
* að öðru tveggja rs. Árna Friðriks-
syni eða rs. Bjarna Sæmundssyni
verði lagt er nýtt skip kemur og að
gerðar verði endurbætur fyrir 50-100
milljónit króna á því skipinu sem
áfram verður notað.
* að rs. Dröfn verði seld, áætlað
söluverð 40-60 millj. kr.
Sem fyrsta skref í framkvæmd þess-
arar tillögu fól Þorsteinn Pálsson, sjáv-
arútvegsráðherrra, stofnuninni nokkru
síðar að hefjast handa um hönnun á
nýju rannsóknaskipi. Sú vinna er nú á
lokastigi og er stefnt að því að bjóða
smíði skipsins út um miðjan septem-
ber 1997.
Verkefnaval á næstu árum
Enda þótt verkefnaval Hafrannsókna-
stofnunarinnar muni að miklu leyti
vera með svipuðu sniði fram yfir alda-
mót og verið hefur undanfarinn ára-
tug, taka rannsóknir mið af breyttum
aðstæðum hverju sinni. Eins og fyrr
verður lögð áhersla á að sinna rann-
sóknum sem tengjast veiðiráðgjöf með
beinum eða óbeinum hætti, þ.e. stofn-
mælingum ýmis konar, nýliðunar-
rannsóknum, veiðitilraunum og rann-
sóknum á umhverfisaðstæðum, en
einnig rannsóknum á afmörkuðum
vistkerfum á íslandsmiðum, sem sér-
stakt gildi hafa fyrir íslenskt hafsvæði.
Átak í
Suðurdjúpsrannsóknum
Með tilkomu nýs og öflugs rannsókna-
skips gerbreytist öll aðstaða til djúp-
hafs- og úthafsrannsókna. í ljósi þess
verður nýrri verkefnisstjórn falið að
undirbúa sérstakt rannsóknaátak um
Pekking Reynsla Pjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SlMI: 581 4670, FAX: 581 3882
52 AGIR