Ægir - 01.09.1997, Side 76
fl 90 ára ..
Gjörbreyttur vinnslusalur ÚA kominn í gagnið:
„Markmið okkar með
breytingumim munu nástu
segir Magnús Magnússon, forstöðumaður framleiðslu- og markaðssviðs
Starfsstúlkur á nýrri flæðilínu í vinnslusal Útgerðarfélags Akureyr-
inga hf. Mikil breyting er orðin í vinnslusal fyrirtœkisins, komnar
inn tvœr flceðilínu frá Marel, brauðunarvél fyrir karfaflök og fleira.
Mynd: Páll A. Pálsson
M'arkmiðið með þessum breyting-
um er sérhœfing, að fínstilla
alla vinnsluna og Itafa yfirsýn á
hverjum degi yfir hvað við erum að fá
út úr rekstrínum. Sérhœfing okkar í
húsinu hér á Akureyri felst í bita-
skurðinum en við ætlum okkur að
verða íslandsmeistarar í bitaskurði.
Og það sem við höfum séð affyrsta
mánuðinum tel ég að segi okkur að
markmiðin með breytingunum munu
nást innari ekki svo langs tínta," segir
Magnús Magnússon, forstöðumaður
framleiðsiu- og markaðssviðs Útgerð-
arfélags Akureyringa en síðsumars
voru gerðar viðamiklar breytingar á
bolfiskvinnslu fyrirtækisins.
„Nýjungarnar sem við tókum upp
með þessum breytingum var ný flæði-
lína með einstaklingseftirliti, sjálfvirk-
ar niðurskurðarvélar sem skera hraðar
og nákvæmar, ný karfavél sem gefur
okkur meiri afköst og nýtingu og dæl-
ing á karfaflökum þar sem fiskurinn er
í lokuðu kerfi og honum dælt í því
innan hússins. Vinnsluaðferðirnar eru
endurbættar þannig að tekin er inn
hraðsnyrting á gullkarfa og sporð-
skurður á bolfiski þannig að sporður-
inn er tekinn af flakinu áður en það
fer inn á snyrtilínu og fer síðan flýti-
leið inn í lausfrystana. Þetta gefur okk-
ur meiri afköst og hærra bitahlutfall.
Loks er að geta brauðunar á karfaflök-
um fyrir Þýskalandsmarkað en þetta
eru fyrstu brauðuðu afurðirnar sem
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna selur
héðan beint að heiman. Það eru því
margir þættir sem hafa breyst frá því
sem áður var,"
segir Magnús.
Tvær nýjar
flæðilínur frá
Marel eru nú i
vinnslusal Út-
gerðarfélags Ak-
ureyringa hf. og
unnið er í
tveimur lotum
frá sjö á morgn-
ana til sjö á
kvöldin. Nýju
línurnar skapa
möguleika á
einstaklings-
bónus þar sem
eftirlit er með
hverjum og ein-
um starfsmanni á flæðilínunni.
Klæðskerasaumur fyrir
viðskiptavinina
„Við erum að nálgast meira unnin
matvæli en áður. Fyrir breytingarnar
vorum við að fullvinna afurðir fyrir
ákveðinn markað en núna erum við
að vinna fleiri vörutegundir fyrir
breiðari markað. Við erum að vinna
nánar með viðskiptavininum enda
erum við að „klæðskerasauma" vöruna
fyrir viðskiptavinina. Tengslin við þá
eru stöðugt að aukast og þeir koma
sínum séróskum beint til okkar. Fisk-
vinnslan nýtir í auknu mæli tölfræði
við að finna hagkvæmustu leiðina að
framleiðslu háverðmætisvörum. í
raun erum við að taka við þessari
vinnu sem felst í niðurskurði flaka af
þeim sem keyptu áður heil flök úr
vinnslu á íslandi. Núna erum við að
gera það sem gert var erlendis áður,"
segir Magnús.
-Getum við leyst þetta verkefni bet-
ur hér heima í húsunum en hægt var í
framhaldsvinnslum erlendis?
„Já, það held ég. Við erum með
miklu meira magn, erum að beita hér
nýjustu tækni með sjónflokkurum og
sjálfvirkum niðurskurðarvélum. Stærð-
in og magnið sem fer í gegn gerir það
líka að verkum að það er hægt að fjár-
festa í meiri búnaði til þessa verkefnis
en t.d. lítil eldhús eða vinnslur erlend-
is geta gert."
Á undanförnum mánuðum hefur
Útgerðarfélag Akureyringa komið á fót
þróunardeild og ráðið matvælafræðing
til vöruþróunar og verkfræðing til þró-
unar á vinnslutækni.
„Með þessu getum við lýst inni-
76 ÆGIR