Ægir - 01.09.1997, Page 88
búnaði sem festur er á veiðarfæri og
sendir stöðugar upplýsingar þráðlaust
til stjórnenda skipanna. Sá skynjara-
búnaður sem ísmar býður er frá Scan-
mar í Noregi. „Þegar aflanemar komu
fram þá þótti mikil bylting að geta
haft við hendina jafnharðan
upplýsingar um afla í trollinu og
hvar aflinn kom í. Þessir skynjar-
ar eru líka að veita upplýsingar
um t.d. hitastig við botninn,
fjarlægð milli hlera, halla og
streymi, t.d. á rækjuristum," seg-
ir Birgir.
Aðspurður um bilanatíðni
þessa búnaðar segir Birgir hana
ekki mikla, miðað við það mikla
álag sem er á tækjunum. „Ég held að
það séu fá skip í flotanum sem ekki
eru með aflanema á sínum trollveið-
um. Þessi upplýsingabúnaður er í
stöðugri þróun og alltaf nýjir notkun-
armöguleikar þróaðir. Það nýjasta er
að nemi veitir upplýsingar um skekkju
í trollinu þannig að skipstjórar fá strax
vitneskju um ef trollið er ekki rétt í
sjónum. Þetta er líka atriði sem eykur
aflann enda kemur lítill afli í veiðar-
færi sem ekki eru eðlileg í sjó," segir
Birgir.
Þjónustað bæði
á landi og sjó
ísmar velti á síðasta ári um 220 millj-
ónum króna og eru starfsmenn 9 tals-
ins. Birgir segir að jafnhliða sölu á
tækjabúnaði veiti fyrirtækið viðgerðar-
þjónustu fyrir tækin og leið-
beiningaþjónustu um notkun
þeirra. Þar af leiðandi má segja
að starfsemin fari fram um allt
land, sem og úti á sjó. „Við
höfum alla tíð lagt mikið upp
úr þjónustuþættinum og að
vera notendum til leiðbeining-
ar eða hjálpar þegar eitthvað
kemur upp á. Það er líka nauð-
synlegt að bregðast skjótt við
því fiskurinn lætur ekki bíða eftir sér,"
segir Birgir Benediktsson hjá ísmar hf.
„Það kemur lítill afli í veiðarfœri
sem ekki eru eðlileg í sjó."
ZODIAC
í fremstu röð frá
upphafl
IqGEIRI
Viðuikenndir af
Sigflnga^tofhun
Islands
Skeifan 13 - sími 588 7660 - fax 581 4775
88 ffilR