Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1998, Page 7

Ægir - 01.04.1998, Page 7
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEOI efla hag greinarinnar, stuðla að fram- förum í íslenskum sjávarútvegi og veita stjórnvöldum og öðrum, sem eft- ir því leiti, umbeðna þjónustu. Mark- miðum sínum hyggst félagið ná með því að takast á hendur verkefni sem varði sjávarútveginn í heild og víðtæk samstaða náist um að félagið sinni. Gert er ráð fyrir að eftirleiðis verði 39 fulltrúar á Fiskiþingum, þ.e. að Far- manna- og fiskimannasamband eigi tvo fulltrúa, Landssamband íslenskra útvegsmanna níu fulltrúa, Landssam- band íslenskra smábátaeigenda þrjá fulltrúa, Samtök fiskvinnslustöðva níu fulltrúa, Sjómannasamband íslands fimm fulltrúa, Verkamannasamband íslands níu fulltrúa og Vélstjórafélag íslands tvo fulltrúa. Verður öflugra Fiskifélag Einar K. Guðfinnsson, fráfarandi for- maður stjórnar Fiskifélags íslands taldi í setningarræðu á Fiskiþingi að breytingarnar ættu eftir að verða til góðs fyrir Fiskifélagið. „Ég er sannfærður um að þessar til- lögur munu verða til að efla starfsemi Fiskifélags íslands, einfaldlega vegna þess að það er mjög mikil þörf fyrir starf af þessu tagi. Við þurfum að eiga sameiginlegan vettvang fyrir sjávarút- veginn í heild þar sem allir geta komið að verki, bæði karlar og konur, fólk úr þéttbýli og dreifbýli, fólk úr öllum þáttum sjávarútvegsins, til að ræða málin. Það er auðvitað mjög margt Ný stjórn kjörin Eftir afgreiðslu á nýjum sam- þykktum fyrir Fiskifélag íslands var á Fiskiþingi kjörin ný stjórn félags- ins. Hana skipa eftirtalin: Pétur Bjarnason, formaður, Ágúst Elíasson, Kristján Þórarinsson, Kristján Loftsson, Guðjón A. Krist- jánsson, Helgi Laxdal, Björn Grétar Sveinsson, Örn Pálsson og Elínbjörg Magnúsdóttir. Einar Guðfinnsson, fráfarandi formaður stjómar Fiskifélags íslands: „Sannfcerður um að breytingamar munu efla Fiskifélag- ið." Fiskifélag íslands sem sundrar okkur í málefnavinnu dagsins en það er líka miklu fleira sem sameinar okkur. Við þurfum að geta rætt málin hispurslaust enda er margt sem er að breytast í starfsumhverfi at- vinnulífsins og þá sérstaklega sjávarút- vegsins. Það er einfaldlega þannig að tímarnir breytast og þeir sem ekki fylgjast með tímanum daga uppi eins og nátttröll. Við erum með þessum breytingum að reyna að gera Fiskifé- lagið betur í stakk búið til að takast á við verkefni framtíðarinnar en skulum um leið gera okkur grein fyrir að við munum sjá ýmislegt breytast í starf- semi Fiskifélagsins. Fiskifélagið á morgun verður ekki eins og Fiskifélag- ið á síðasta ári, það verður breytt en ég hef trú á að það verði öflugra Fiskifé- lag," sagði Einar K. Guðfinnsson, sem ekki gaf kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu í Fiskifélagi íslands. Pétur Bjarnason, nýkjörinn formaður stjómar Fiskifélagsins: „Mikil vinna fram- undan við mótun félagsins." Þörf fyrir sameiginlegan vettvang Pétur Bjarnason kynnti á Fiskiþingi niðurstöður starfshópsins um framtíð- arskipulag Fiskifélags íslands og sagði grundvallarspurninguna snúast um hvort þörf sé fyrir sameiginlegan vett- vang í íslenskum sjávarútvegi þar sem hægt sé að kryfja mál til mergjar og kalla til sjónarmið allra úr atvinnu- greininni. „Nefndin svaraði þessari spurningu játandi og okkar starf miðaði að því að fara yfir þau verkefni sem ætti að vinna á þessum vettvangi og hins veg- ar hvernig kjósa ætti til Fiskiþings og hvernig málefnaumræða eigi að verða þar," sagði Pétur. Pétur fór í máli sínu yfir þau verk- efni sem horft sé til fyrir Fiskifélagið í framtíðinni og gat sérstaklega verk- efna á sviði umhverfismála, mennta- mála og ímyndaruppbyggingar fyrir greinina, jafnt á innlendum sem er- lendum vettvangi. „Ég held að menn hafi almennt átt- að sig á að við stöndum bara frammi fyrir tveimur kostum: annað hvort að leggja félagið niður eða að reyna að finna félaginu annað form sem gæti gert að verkum að menn sameinuðust ------------------AGIR 7

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.