Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1998, Side 8

Ægir - 01.04.1998, Side 8
um Fiskifélagið og skapi því verkefni," sagði Pétur og lagði áherslu á að hér sé ekki um að ræða ásókn hagsmuna- samtaka í sjávarútveginum til að koma höndum yfir Fiskifélagið heldur hafi hagsmunasamtökin í raun verið talin á að taka höndum saman á þessum vettvangi. „Nýrrar stjórnar bíður mikið verk- efni, blóð, sviti og tár. Það er mikið verk að halda áfram við að setja kjöt á þetta bein. Við þurfum að fara út í þjóðfélagið, bæði til yfirvalda og hagsmunaaðila, til að tryggja þann stuðning sem nauðsynlegur er. Til að verða trúverðugir í þeirri vinnu þá þurfum við mjög afgerandi stuðning núverandi Fiskiþings. Þeir hagsmuna- aðilar sem við munum leita tii þurfa að vera þess meðvitaðir að bak við þetta nýja Fiskifélag sé einhuga hóp- ur," sagði Pétur Bjarnason. Fiskifélagsdeildirnar geta starfað áfram í umræðum um breytingartillögurnar á Fiskiþingi var mest rætt um tilvist fiskifélagsdeildanna og hvort ástæða væri til að halda þeim möguleika opn- um að þær geti starfað áfram, eins og 8 AGHR --------------------------- gert var ráð fyrir í tillögum starfshóps- ins. Tillaga var lögð fram þess efnis að fella ákvæðið út úr breytingartillögun- um en hún fékk ekki hljómgrunn og því geta fiskifélagsdeildir út um landið starfað áfram, þrátt fyrir að senda ekki fulltrúa til Fiskiþings. f nýju samþykktunum segir að fiski- félagsdeildunum sé heimilt að starfa og kenna sig við Fiskifélag íslands, þó án beinnar aðildar að félaginu. Fiskifé- lagsdeildirnar verða að starfa sjálfstætt en geta óskað aðstoðar frá Fiskifélag- inu við fundi eða aðra starfsemi. „Fiskiþingin hafa verið þroskandi" Jóhann K. Sigurðsson á Neskaupstað tók til máis á Fiskiþingi og rifjaði upp hvernig starfið hafi verið á árum áður í fiskifélagsdeildunum og Fiskifélaginu sjálfu. Hann taldi deyfðina hafa byrjað þegar að hafi þrengst í tekjum Fiskifé- lagsins en hann sagðist sakna þess starfs sem hafi verið í fiskifélagsdeild- unum. „Menn í fjórðungunum sameinuð- ust á fiskideildafundum og þarna urðu menn bestu vinir, þrátt fyrir að stund- um yrði ágreiningur um málefni. Sama gerðist á Fiskiþingum. Hér M, hafa menn deilt í Wl' gegnum árin en T|l L' hafa verið bestu % vinir þrátt fyrir það," sagði Jó- hann og taldi fyr- irséð að starf fiski- félagsdeildanna Jóhann K. Sigurðs- kæmi til með að son. hverfa. „Mér finnst ég hafa lært mikið hér á Fiskiþingum og starfið hefur verið af- skaplega þroskandi. Maður hefur kynnst hér fólki úr öllum fjórðungum, úr öllum stéttum og ég tel því að Fiski- þingin hafi gert víðáttuna breiðari í mínum huga. Ég sé ekki eftir þeim árum sem ég hef verið hér. Ég áttaði mig á því að svona gat þetta ekki gengið lengur, félögin of dauf og Fiskifélagið. Ég sakna vissulega deildanna og það mun koma nýr andi inn á Fiskiþing en ég styð þá breyt- ingu sem nú er verið að gera enda ekki um annað að ræða," sagði Jóhann K. Sigurðsson. „Félag sem hefur unnið mikið og þarft verk“ Kristján Ásgeirsson á Húsavík rakti í ávarpi sínu að miklu hafi breyst í starfi Fiskifélagsins þeg- ar löggjafarsam- koman hafi ákveð- ið að hætta bein- um fjárveitingum á fjárlögum til þess. Þar með hafi fjárhagslegu ör- yggi verið kippt undan félaginu og ekki hafi verið fyr- ir hendi næg verk- efni til að standa undir starfinu. „Auðvitað finnst öllum, sem að málum hafa komið, óeðlilegt að svo skuli enda fyrir Fiskifélagi íslands, sem var stofnað árið 1911 og er búið að vinna mikið og þarft verk að sjávarút- Kristján Ásgeirsson.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.