Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1998, Page 33

Ægir - 01.04.1998, Page 33
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Á sannleiksgildi þessarar sögu getur hver trúað sem vill, en sem söguleg heimild er hún kannski athyglisverð- ust að því leyti sem hún lýsir viðhorfi fólks til hákarlamanna. Þeir voru karl- ar í krapinu, stunduðu erfitt og hættu- legt starf, urðu oft að þola kulda og vosbúð, en drógu mikla bjög í bú og þénuðu vel. Hvað var þá nærtækara en að gera þá alla að fílefldum brenni- vínsberserkjum? Hafa þeir ekki alltaf verið þjóðhetjur á íslandi hvort eð er? í tengslum við þilskipaútgerðina risu á fót merkar stofnanir og starf- semi, sem enginn kostur er að gera verðug skil í þessari stuttu grein. Þar er fyrst að geta sjómannafræðslu, sem einstaka skipstjórar höfðu með hönd- um, og mun kennsla Jóns Loftssonar á Efra-Haganesi í Fljótum hafa verið þekktust. Merkasti sjómannafræðarinn mun þó hafa verið Einar bóndi Ás- mundsson í Nesi í Höfðahverfi. Hann hélt um skeið uppi kennslu í skip- stjórnarfræðum á heimili sínu og samdi kennslubók um efnið. í annan stað ber að geta stofnunar Hins eyfirska ábyrgðarfélags. Helsti hvatamaður að stofnun þess var B.A. Steincke, verslunarstjóri við Gud- mansverslun á Akureyri. Félagið var stofnað árið 1868 og starfaði fram á 9. áratug aldarinnar. Hlutverk þess var að tryggja þilskipin, en tíðir skiptapar ollu útvegsmönnum oft miklu tjóni. Þegar kom fram um og yfir 1870 fór nokkuð að draga af þilskipaútgerð bænda við Eyjafjörð. Olli þar mestu að eftir að steinolía tók að flytjast í veru- legum mæli á markaði í Evrópu á 7. áratug aldarinnar, leysti hún lýsið af hólmi sem ljósmeti. Þá lækkaði verðið á lýsinu og Ieið ekki á löngu, uns það varð nær óseljanlegt. Þá var grundvell- inum kippt undan hákarlaútveginum og varð að finna skipunum nýtt hiut- verk. Frá því segir í næstu grein. Biarmi Bfl «6 Ofkum út?erð o? áhöfn til haminfju með breijtin?arnar Búnaður um borð er: Ratsjár: FURUNO FR-2110 /með ARPA & Plotter og FURUNO Model 1831 Dýptarmælar: FURUNO FCV-783 á 28/88kHZ & FCV-292 á 28/200 kHZ Sónar: FURUNO CH-36/ á 162 kHZ Talstöðvar: FURUNO-FM-2520 & SKANTI VHF-3000+DSC NX-500 navtex Staðsetningartæki: GP-500 MK-11, & GP-80 Plotter, GD-188 leiðarriti Símkerfi + sjónvarps- og útvarpskerfi, + myndavélakerfi ásamt öðrum búnaði FURUNO Brimrún ehf Hólmaslóð 4 • 101 Reykjavík • Sími 561 0160 • Fax 561 0163 MIR 33

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.