Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1998, Síða 35

Ægir - 01.04.1998, Síða 35
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI vélarými fram í stefni, auk aðalvélar- rúms í afturskipi. Nýr toggálgi og nóta- tromla eru á efra þilfari aftur á skut og tvískiptar togvindur á sama þilfari framskips við frammastur. Rými undir aðalþilfari Undir aðalþilfari er bátinum skipt með fjórum vatnsþéttum rýmum talin frá stefni: stafnhylki fyrir sjó, botntankar fyrir ferskvatn, ofan á botntönkum er ljósavélarými, þá 14,5 metra löng lest, vélarúmið er aftan við lestina með há- tönkum fyrir olíu í hvorri siðu og í skut eru tankur fyrir sjó. íbúðir Aðstaða fyrir áhöfn og íbúðir voru end- urnýjaðar og eru í afturskipi milli þil- fara. Klefar eru fyrir níu manns í fjór- um tveggja manna klefum og eins manns klefa fyrir aftan brú. Gengið er inn af aðalþilfari stjórn- borðsmegin inn í stakkageymslu og þaðan inn á gang miðskips. Inn af stakkageymslu er salerni, snyrting og þvottaaðstaða með þvottavél og þurkara. Þar fyrir aftan er klefi fyrir tvo skipverja, þá salerni og sturta, tveir íbúðaklefar þverskips aftast og þar fyrir aftan stýrisvéiarými. Miðskips fremst eru geymslur fyrir kost, þá sambyggt eldhús og borðsalur út í bakborðssíðu, þar fyrir aftan er setustofa og þá íbúðaklefi. Stigahús er upp í brú og vélareisnin er miðskips. íbúðir og vistaverur eru hitaðar upp með kælivatni véla eða beint með heitu vatni frá rafkyndingu. Brúin Stýrishúsið var keypt notað úr áli úr norskum bát. Það er á reisn á þilfars- húsi. í brúnni eru öll helstu siglinga- og fiskleitartæki ásamt stjórnpúiti fyrir togvindur. Tveir nýir leðurklæddir brú- arstólar eru i Bjarma, annar fastur en hinn í braut. Úr brúnni er utangengt út á efra þilfar stjórnborðsmegin. Á brúar- þaki er radar-, ljósa- og loftskeytamast- ur sambyggt við skorstein. í brúarreisn hefur verið komið fyrir andveltitanki til að milda hreyfingar skipsins. Bakkinn Bakkinn var endursmíðaður að hluta og slegið út þannig að Bjarmi er nú með svínahrygg. Uppgöngukappa var komið fyrir á bakka og er fært um hann niður á aðalþilfar og í vélarúm. Ferill Bjarma Báturinn var smíðaður í Noregi hjá Brastad Shipsbyggeri árið 1968. Hann hefur smíðanúmer 314 frá stöðinni og var afhentur eiganda í Noregi í febrúar 1969 og hét þá Bye Senior. Olafur Jónsson o.fl. fluttu bátinn inn í maí 1973 og gerðu út frá Sand- gerði undir nafninu Reynir GK 177. Grétar Haraldsson o.fl. eignuðust bátinn 1977 og Sandanes árið eftir. Hólmar V. Gunnarsson gerði bátinn út frá október 1991 í Þorlákshöfn og hét hann þá Júlíus ÁR 111. Skag- strendingur hf. gerði bátinn út frá sama stað árin 1992 og 1993 þar til Isnes hf. tók við útgerð bátsins í nóvember 1993 og gerði út frá Keflavík og fékk hann þá nafnið Jó- hannes fvar KE 85. Fiskvinnslan Kambur hf. tók við útgerð bátsins í nóvember 1995 og gerði út frá Flat- eyri undir sama nafni en einkenninu ÍS 193. Tálkni á Tálknafirði keypti bátinn í apríl 1997 og fór báturinn beint í breytingu sem var lokið, eins og fyrr segir, í febrúar. Báturinn er gerður út frá Tálknafirði og heitir nú Bjarmi BA 326. Gamla Bjarma BA 327 sem er í eigu sama félags hefur verið lagt og aflaheimildir af honum fluttar yfir á hin nýja Bjarma BA 326. Bjarmi BA 326 kom með 573 hestafla Caterpillar vél sem var skipt út á árinu 1988 fyrir 715 hestafla Catepillar. Þá var byggt yfir þilfar bátsins í nóvember 1989. Báturinn var smíðaður sem hefðbundinn ver- tíðarbátur og hefur verðið gerður út á öll helstu veiðarfæri, s.s. net, línu, humartroll, troll og dragnót. Helstu mál og stærðir Aðalmál í dag fyrir breytingu Mesta lengd (Loa) 33,86 m 26,36 m Lengd milli lóðlína 29,46 m 22,70 m Breidd (mótuð) 6,40 m Dýpt að neðra þilfari 3,50 m Rými og stærðir Eiginþyngd 257 tonn Særými við 4,0m djúpristu 375 tonn Lestarými 132 kör 660 I Brennsiuolíugeymar 20 tonn Ferskvatnsgeymar 14 tonn Mæling Rúmlestatala 161,66 Brl 105,26 Brl Brúttótonnatala 222,00 BT 146,00 BT Nettótonn 67,00 NT 54,00 NT Rúmtala 659,9 m3 508,5 m3 Skipaskrár númer 1321 Aflvísir 1323 Aætluð bryggjuspyrna 10,4 tonn ÆGIR 35

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.