Ægir

Volume

Ægir - 01.05.1998, Page 9

Ægir - 01.05.1998, Page 9
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI sér í lagi foreldrar hans, áttu mikið undir í starfsemi Vinnslustöðvarinnar og í ársbyrjun 1992 sameinuðust nokkur fyrirtæki í Eyjum undir merkj- um Vinnslustöðvarinnar. Það átti að vera svar við erfiðleikatímabilinu ár- inu á undan. Bjarni Sighvatsson, faðir Sighvats, var stjórnarformaður Vinnslu- stöðvarinnar á þessum tíma en það var samt ekki hann heldur endurskoð- andi fyrirtækisins, Þorvarður Gunnars- son, sem hafði samband við Sighvat í Frakklandi og bauð honum að koma heim og taka við framkvæmdastjórn Vinnslustöðvarinnar hf. „Ég tók mér nokkurn frest til að svara þessu tilboði. Faðir minn vildi í rauninni ekki að ég tæki verkefnið að mér því staðan væri erfið og tvísýnt um framhaldið. Honum fannst að ég gæti verið að hætta of miklu af mín- Sighvatur liugar að saltpskafurðunum. Sem stjórnarformaður í SÍF og fyrrum starfsmaður þar á bce hefur Sighvatur fengið mikla innsýn í markaðsstarf erlendis og segir það nýtast sér í störfum fyrir Vinnslustöðina um framtíðarmöguleikum og í raun lagði hann hart að mér að segja nei. Ég gerði mér grein fyrir að staðan var erfið en sú hugsun var líka sterk að þarna væri komið spennandi tækifæri til að leggja lið því fyrirtæki sem ætt- liðirnir á undan mér hefðu verið að byggja upp, snúa rekstrinum á betri brautir og koma Vinnslustöðinni í hóp öflugustu sjávarútvegsfyrirtækja á íslandi," segir Sighvatur og neitar því að inn í sína ákvörðun hafi spilað að hann var alnafni afa síns, eins af stofnendum Vinnslustöðvarinnar. „Nei, en þetta var samt hans ævi- starf og mér fannst vafamál að ég hefði leyfi til að neita að hjálpa til við að snúa fyrirtækinu við. Niðurstaðan varð því sú hjá mér að snúa frá Frakk- landi og fara aftur til Eyja. Það er ákvörðun sem ég sé ekki eftir." ( Víð sjéum stin Matvara Hreinlœtisvörur Búsáhöld Sérvara Rel^s trarvörur Hreinsiefni Hntfé Við utvegum: Svuntur öll raf"'aSnstaK' Leitið rdðlegginga okkar sérfrmðinga um kaffimálin og hreinUetismálin Verið velkomin á skrifstofu og í synitigarsal okkar að Óseyri 1 á Akureyri, 2. hœð. ...á sjó og landi! ÓSEYRl 1 600 AKUREYRl Símar 463 0407 896 0485 Fax: 463 0375 MM 9

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.