Ægir - 01.05.1998, Qupperneq 9
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
sér í lagi foreldrar hans, áttu mikið
undir í starfsemi Vinnslustöðvarinnar
og í ársbyrjun 1992 sameinuðust
nokkur fyrirtæki í Eyjum undir merkj-
um Vinnslustöðvarinnar. Það átti að
vera svar við erfiðleikatímabilinu ár-
inu á undan. Bjarni Sighvatsson, faðir
Sighvats, var stjórnarformaður Vinnslu-
stöðvarinnar á þessum tíma en það
var samt ekki hann heldur endurskoð-
andi fyrirtækisins, Þorvarður Gunnars-
son, sem hafði samband við Sighvat í
Frakklandi og bauð honum að koma
heim og taka við framkvæmdastjórn
Vinnslustöðvarinnar hf.
„Ég tók mér nokkurn frest til að
svara þessu tilboði. Faðir minn vildi í
rauninni ekki að ég tæki verkefnið að
mér því staðan væri erfið og tvísýnt
um framhaldið. Honum fannst að ég
gæti verið að hætta of miklu af mín-
Sighvatur liugar að saltpskafurðunum.
Sem stjórnarformaður í SÍF og fyrrum
starfsmaður þar á bce hefur Sighvatur
fengið mikla innsýn í markaðsstarf
erlendis og segir það nýtast sér í störfum
fyrir Vinnslustöðina
um framtíðarmöguleikum og í raun
lagði hann hart að mér að segja nei.
Ég gerði mér grein fyrir að staðan var
erfið en sú hugsun var líka sterk að
þarna væri komið spennandi tækifæri
til að leggja lið því fyrirtæki sem ætt-
liðirnir á undan mér hefðu verið að
byggja upp, snúa rekstrinum á betri
brautir og koma Vinnslustöðinni í
hóp öflugustu sjávarútvegsfyrirtækja á
íslandi," segir Sighvatur og neitar því
að inn í sína ákvörðun hafi spilað að
hann var alnafni afa síns, eins af
stofnendum Vinnslustöðvarinnar.
„Nei, en þetta var samt hans ævi-
starf og mér fannst vafamál að ég
hefði leyfi til að neita að hjálpa til við
að snúa fyrirtækinu við. Niðurstaðan
varð því sú hjá mér að snúa frá Frakk-
landi og fara aftur til Eyja. Það er
ákvörðun sem ég sé ekki eftir."
(
Víð sjéum
stin
Matvara Hreinlœtisvörur Búsáhöld
Sérvara Rel^s trarvörur Hreinsiefni
Hntfé
Við utvegum:
Svuntur
öll raf"'aSnstaK'
Leitið rdðlegginga okkar sérfrmðinga um
kaffimálin og hreinUetismálin
Verið velkomin á skrifstofu og í synitigarsal
okkar að Óseyri 1 á Akureyri, 2. hœð.
...á sjó og landi!
ÓSEYRl 1 600 AKUREYRl Símar 463 0407 896 0485 Fax: 463 0375
MM 9