Ægir - 01.05.1998, Qupperneq 14
Sjávarútvegurinn 1997
H'eildarafli íslendinga hefur
aldrei verið meiri en á árinu
1997. Heildaraflinn varð um 2,2
milljónir tonna og var árið 1997 því
metaflaár íslandssögunnar, hvað
varðar magn. Aukningin tnilli ára er
þó ekki mjög mikil, eða utn 7%, þar
sem árið 1996 var metárið til þessa
eti aflititt þá var um 2.0SS þiísund
tonn. Aflinn á árinu 1997 var utn
2.199 þúsutid tonn og nú settt áður
var loðna uppistaða aflans.
Bolfiskaflinn á árinu dróst saman
um 20 þúsund tonn, miðað við árið á
undan, sem svarar til 4,5%. Samdrátt-
ur í ýsuaflanum vegur þar þyngst á
metunum, en ýsuaflinn dróst saman
um 23%, eða um tæp 13 þúsund tonn.
Einnig dróst ufsaaflinn saman, annað
árið í röð, nú um tæplega 4 þúsund
tonn, eða um 7%. Karfaaflinn í heild
dróst saman um 7,5% og varð heildar-
karfaveiðin um 111 þúsund tonn.
Úthafskarfaafli dróst saman úr um
53 þúsund tonnum árið 1996 í um 39
þúsund tonn árið 1997, eða um 27%.
Aftur á móti jókst karfi á hefðbundn-
um miðum um tæp 8%.
Þorskafli jókst nú annað árið í röð
og varð yfir 200 þúsund tonn á heima-
miðum. Þetta er í fyrsta sinn sem
aukning verður síðan 1993. í heild
jókst þorskaflinn um 2,2% og varð um
209 þúsund tonn árið 1997, en
þorskafli af heimamiðum jókst um
12% og varð um 202 þúsund tonn.
Flatfiskaflinn minnkaði milli ár-
anna 1996 og 1997 um tæplega 5
þúsund tonn, eða um tæp 10%. Þetta
var annað árið í röð sem flatfiskaflinn
minnkaði. Stór hluti þessa afla er grá-
lúða og hefur grálúðuveiðin dregist
verulega saman á undanförnum árum.
Grálúðuaflinn er nú um 18.600 tonn
en var fyrir um fimm árum um 30
þúsund tonn. Flatfiskaflinn síðustu
sex ár hefur sveiflast milli 51 og 56
þúsund tonn, en er nú kominn niður
fyrir 50 þúsund tonnin.
Uppsjávarfiskar, þ.e. loðna og síld,
eru þær tegundir sem bera upp afla-
magnið. Loðnuaflinn jókst enn eitt
árið og varð í heild yfir 1,3 milljónir
tonna. Hefur hann aldrei orðið eins
Heildarafli Islendinga 1977-1997
Hlutfallsleg sklpting heildarafla, helstu flokkar - afli af öllum mlðum
14 ÆGIR