Ægir - 01.05.1998, Page 43
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
hve löngum tíma við vorum að vinna
að smíðinni þá var hún ekki eins hag-
kvæm eins og ella hefði verið en ég
reikna með að við tækjum ekki svona
verkefni á sömu forsendum. Við erum
samt opnir fyrir öllum verkefnum en
spurningin snýst alltaf um hvaða
markaður er fyrir hendi. Stærri skipa-
smíðaverkefnin fara yfirleitt erlendis
þannig að okkar möguleiki á nýsmíða-
verkefnum felst varla í öðru en minni
bátunum. í þeim stærðarflokki skipa
eru frekar líkur til að geta keppt í verð-
um," segir Ólafur og bætir við að fyrir-
tæki á stærð við Skipalyftuna henti
frekar að sinna viðhaldsverkefnum og
minniháttar smíði. Starfsmenn fyrir-
tækisins eru 45 um þessar mundir og
ársveltan hefur á undanförnum árum
verið um 220 milljónir króna.
„Flestir verða starfsmennirnir um 50
þegar best lætur en það er mjög erfitt
að fá járniðnaðarmenn til starfa. Þá er
ekki að finna hér innan bæjar," segir
Ólafur.
Mikils virði að hafa trausta
skipaþjónustu í Eyjum
Útgerðarbænum Vestmannaeyjum er
mjög nauðsynlegt að hafa trausta
skipaþjónustu innanbæjar. Aðspurður
hvort einhverjar hugmyndir séu uppi
um endurnýjun á skipalyftunni þannig
að fyrirtækið geti tekið upp stærri skip
segir Ólafur að fáa raunhæfa mögu-
leika í þá veru sé að finna.
„Ég sé ekki aðra möguleika en þurr-
kví vegna þess að hér við höfnina er
ekki meira rými á lausu. I>að atriði
sníður okkur þröngan stakk en vissu-
lega er það svo að við getum ekki þjón-
ustað alla aðila hér í heimaflotanum.
Við erum þess vegna að missa frá okk-
ur slipptökur og yfirleitt eru alltaf verk-
efni sem fylgja þegar skipin eru komin
í slipp og þau missum við þá líka," seg-
ir Ólafur.
Varðandi framtíðarmöguleikana er
Ólafur bjartsýnn. Með auknum kvóta
leggi útgerðirnar frekar en ella í við-
Ólafir Friðriksson, framkvcvmdastjóri Skipalyftuimar hf. „Aukinti kvóti murj þýða aukin
verkefiii fyrir Skipalyftuna."
hald og breytingar á skipum og bátum.
Því til viðbótar hafi verið gerðar breyt-
ingar á stærðarflokkum báta og þær
hafi þegar skilað breytingaverkefnum.
„Hér er mjög öflugur bátafloti og þrátt
fyrir að menn spái ekki vel fyrir
bátaútgerðinni þá verður hún alltaf
sterk hér í Eyjum. Auking á kvótanum
mun því í öllu falli þýða aukin verk-
efni fyrir okkur," segir Ólafur.
Sendum sjómönnum
og jjölskyldum þeirra
hátíðarkveðjur í tilefni
sjómannadags
J&runnar
Skútahrauni 2 - Hafnarfirði
AGIR 43