Ægir - 01.05.1998, Side 61
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
tengist stýrisblaði af Becker útfærslu.
Upphitun og kynding er með raf-
magni. Rafmagnsofnar eru í íbúðum
og þær loftræstar með rafmagnsloft-
blásara.
íbúðir
Þrír klefar eru undir þilfari, eins manns
klefi og tveir tveggja manna klefar. Þar
er einnig snyrting með salerni og
sturtu. Fremst í þilfarshúsi er sam-
byggt eldhús og borðsalur, geymsla og
aftast er vélareisn. Matvælageymsla er í
kæliskáp og frystiskáp. íbúðir em ein-
angraðar með steinull og klæddar
plasthúðuðum plötum.
Vindu og dekkbúnaður
Dragnótavindur eru frá Grenaa, sem
samanstendur af einni dráttarvindu og
tveimur geymslutromlum. Tveir kranar
eru frá Tico, annar af gerðinni WTM
50 sem lyftir 850 kg við 5,3 metra arm,
hinn er 35 WTM með lyftigetunni 750
kg við 4 metra arm. Stærri kraninn er
aftast á brúarþaki en hinn aftur í skut.
Akkerisvindan er frá Hydema með
keðjuskífu og kopp. Hún togar 2,5
tonn.
Rafeindatæki í brú o.fl.
Radar: Furuno FAR 8030D,
48 sjómílna
Seguláttaviti: Neptun
GPS móttakari: Koden KGP 900
Sjálfstýring:
Leiðariti:
Dýptarmælir
Tölvuplotter:
Talstöð:
Robertson AP 45
JRC, NWU52
og Shipmate RS 2500
Skipper CS 115
og Simrad
Turbo 2000
Skanti TRP 4000
Örbylgjustöðvar eru frá Sailor RT 143
og Famita 500.
Öryggis- og björgunarbúnaður
samanstendur m.a. af tveimur sex
manna gúmmíbjörgunarbátum, öðrum
frá D.S.L en hinum frá Viking. Einnig
eru í bátnum flotgaliar og Halon
slökkvikerfi.
Fiskifélagið þakkar öllum sem aðstoð-
uðu og veittu upplýsingar við gerð greinar-
innar, sérstaklega þeim: Einari Einarssyni
hjá SkipaSýn, Ólafi Aðalsteinssyni og
Gísla Elíassyni hjá Siglingastofnun ís-
lands.
Fróðleikur um kosti og
galla áls við bátasmíði
Einungis sex bátar í íslenskum
fiskiskipaflota eru úr áli og er það
umhugsunarvert. Kostir áls sem
byggingarefni fyrir fiskibáta eru þó
nokkrir umfram stál.
Benda má á að efnisþyngd skrokks
úr áli er aðeins um 30% af efnisþyngd
samskonar báts úr stáli. Það þýðir að
álbáturinn hefur mun hærra fríborð,
ber meira en jafn stór stálbátur, þarf
minna vélarafl út á skrúfu og eyðir
þar af leiðandi minna eldsneyti en
stálbáturinn. Þá er viðhalds- og máln-
ingarkostnaður álskrokks mun minni
en stálskrokks og báturinn breytist
ekki í ryðkláf á einni vertíð.
Helstu vandamál við smíði álbáta
eru meiri byggingakostnaður og tær-
ing ef ekki er rétt að verki staðið. Það
vandamál er að mestu leyst í dag og
álbátar af samsvarandi stærð og Rúna
eru víða algengir, sérstaklega í V-
Kanada.
Óshum útgerð og
Rúnu RE 150
tít hamingju
með skipið
Vanir menn vönduð vinna
5TRL-0RKR
Skútahrajn 11 -220 Hafnarfjörður
Sími 565 0399 - Fax 565 2540
Bílasími 892 7687
ÁGIR 61