Ægir - 01.10.1999, Síða 13
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
„Ef ég tek fjölskyldufyrirtækin sem
dæmi þá er oft vænleg leið fyrir þau
að fá í byrjun skráningu á vaxtarlista
VÞÍ en þar eru ekki eins ströng skilyrði
um hluthafafjölda og gerist á aðallist-
anum. Félögin þurfa að sýna fram á
um 80 milljóna króna markaðsverð-
mæti og að a.m.k. 25% hlutafjár dreif-
ist meðal almennra fjárfesta. Verð-
mætakröfunni held ég að flest fyrir-
tæki í alvöru rekstri nái auðveldlega
en það er eignarákvæðið sem hefur
reynst meiri þröskuldur," segir Gunn-
ar.
En það er ekki nóg að uppfylla áð-
urnefnd skilyrði. Stjórn VÞÍ tekur af-
stöðu til skráningar nýrra fyrirtækja
hverju sinni og þarf þá að líta til hags-
muna og almennings og verðbréfa-
markaðarins. Þannig gætu komið upp
þau tilvik að stjórnin vísi félögum frá,
t.d. ef þau eru ekki talin rekstrarvæn-
leg. Verðbréfamarkaðurinn er því ekki
leið út úr rekstrarvanda heldur
kannski miklu fremur leið sem góður
rekstur opnar fyrirtækjum.
Keppikefli að komast inn
á aðallista VÞÍ
Segja má að munurinn á vaxtarlista og
aðallista VÞÍ sé í grunninn ekki veru-
legur og eru báðir listarnir fullgildir
kauphallarlistar í samræmi við tilskip-
anir ESB á því sviði. Eins og áður segir
stíga fyrirtæki gjarnan sín fyrstu skref
á markaðnum með skráningu á vaxt-
arlistanum en fá síðan skráningu á að-
allista, þar sem er að finna fyrirtæki
með mikinn fjölda hluthafa og virkari
verðmyndun.
„Verið getur að sumum finnist það
meiri virðingarsess fyrir fyrirtæki að
ná inn á aðallistann. Án þess að
nokkrar reglur séu fyrir hendi þá
finnst mér ekki ólíklegt að sumir
stærri fjárfestar setji sér þá viðmiðun
að kaupa aðeins í fyrirtækjum á aðall-
ista þannig að það er fyrirtækjunum
mikið keppikefli að ná þangað," segir
Gunnar Halldórsson.
viðskipti með þau. Útgefendur verð-
bréfa óska eftir skráningu verðbréfa á
þingið. Þrjár tegundir verðbréfa eru
skráðar; hlutabréf, skuldabréf og hlut-
deildarskírteini verðbréfasjóða.
Verðbréfaþing rekur tölvuvætt við-
skipta- og upplýsingakerfi þar sem við-
skipti með skráð verðbréf fara fram en
VÞÍ stundar ekki viðskipti sjálft. Segja
má að VÞÍ sé hlutlaus umsjónaraðili
með verðbréfamarkaðnum og gæti
þess að lög og reglur séu haldnar
þannig að heilbrigður verðbréfamark-
aður geti þrifist. Þingið mótar leikregl-
ur sem fyrirtæki þurfa að uppfylla til
að fara inn á markaðinn og jafnframt
þurfa fyrirtækin að tilkynna Verð-
bréfaþingi um allar þær ákvarðanir
sem teknar eru í daglegum rekstri og
geta snert gengisþróun í viðskiptum
með hlutabréf þeirra.
Opnar leið
fyrir fjölskyldufyrirtækin
Ein af vinsælustu setningum í ölduróti
viðskiptanna og samrunaferlinu í sjáv-
arútveginum er þessi:
„Stefnt er að skráningu fyrirtækisins
á Verðbréfaþing."
Ástæður þessa eru fjölþættar. Ein er
sú að með markaðsskráningu gefst t.d.
eigendum fjölskyldufyrirtækja tæki-
færi til að losa um sínar eignir, í öðr-
um tilfellum meta eigendur fyrirtækja
það svo að markaðsskráning sé væn-
legasta Ieiðin til að viðkomandi fyrir-
tæki geti vaxið og dafnað. í enn öðr-
um tilfellum vilja menn koma sínum
fyrirtækjum í kastljós, njóta þeirrar
viðurkenningar sem því fylgir eiga fyr-
irtæki með skráningu á Verðbréfaþingi
og bíða tækifæranna til hagstæðra
sameininga við önnur fyrirtæki.
Gutmar Halldórsson, starfsmaöur VÞÍ.
aðallista Verðbréfaþings íslands."
„Virðingarsess fyrir fyrirtœki að ná inn
AGIR 13