Ægir - 01.10.1999, Qupperneq 15
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
lega sé hægt að finna galla á hinum
stóru fyrirtækjum, ekkert síður en hin-
um minni. „Á árum áður var myndin
sú að það voru þekktir útgerðarkóngar í
hverju byggðarlagi og í kringum þá
fjölskyldur og ættir sem áttu mikið
undir sér. Þar af leiðandi fylgja því til-
finningaleg átök þegar breitt er yfir í
umhverfi nútímans þar sem hugsun
númer eitt er hagkvæmur rekstur fyrir-
tækjanna. Þessi fyrirtæki voru nánast
eingöngu rekin með hag byggðarlags-
ins að leiðarljósi þar sem hugtökin arð-
ur og framleiðni voru óþekkt. Mér
finnst mjög skiljanlegt að þessi breyt-
ing taki sinn tíma og að henni fylgi til-
finningalegt átök en ég tel mig merkja
að breytingin sé þegar gengin yfir hjá
flestum af þekktari sjávarútvegsfyrir-
tækjunum," segir Guðjón.
Enn er óplægður akur
Guðjón sér fyrir sér að fyrir utan áfram-
hald samrunahrinu sjávarútvegsfyrir-
tækjanna, sem þegar eru komin inn á
hlutabréfamarkaðinn, sé ekki ólíklegt
að til geti orðið ný og stór fyrirtæki þar
sem mörg millistór fyrirtæki muni sam-
einast undir einum hatti.
„Að mínu mati," segir Guðjón, „eig-
um við eftir að sjá 4-6 stór fyrirtæki í
sjávarútveginum í framtíðinni en milli-
stóru félögin eiga samt sem áður eftir
að leika stórt hlutverk í greininni. At-
hyglin beinist að hinum stóru og ég sé
fyrir mér að ÚA og HB eigi eftir að sam-
einast og á ^íðari stigum renni Síldar-
vinnslan inn í það félag. Einnig er fjár-
festing Þormóðs ramma-Sæbergs hf. í
Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru hf. ákveð-
in vísbending um samruna og ég tel að
við eigum eftir að sjá eitthvað gerast
þar innan skamms. Ekki má gleyma að
eignarhluta Granda í Þormóði ramma-
Sæbergi er um 17% og útiloka ég ekki
að þau fyrirtæki geti átt samleið. Kaup
Samherjasamstæðunnar á eigin bréfum
er hugsanlega liður í yfirtöku á öðru
sjávarútvegsfyrirtæki.
Miðað við núverandi lög um stjórn-
un fiskveiða er einstöku félagi ekki
heimilt að ráða yfir meira en 10% af út-
hlutuðum þorskkvóta og því geta þessi
lög komið í veg fyrir frekari hagræð-
ingu í sjávarútvegi. Ég tel það aðeins
tímaspursmál hvenær stjórnmálamenn
átta sig á því óhagræði sem felst í lög-
gjöfinni og breyti í takt við þá framþró-
un sem hefur átt sér stað í sjávarútveg-
inum.
Ég tel samrunaferlið hvergi nærri á
enda runnið og ég get bara bent á Eyj-
arisann svokallaða og SÍF-ÍS sem dæmi.
Það eru markverðustu leikirnir á fyrir-
tækjamarkaðinum í sjávarútvegi á
þessu ári - að minnsta kosti enn sem
komið er," segir Guðjón Sævarsson hjá
Búnaðarbankanum Verðbréfum.
Samruni fjögurra fyrirtækja í Eyjarisann svokallaða telst til
markverðari fyrirtækjasameininga hér á landi í ár:
„Hrföi verið óframkvæmanlegt
án hlutabréfamarkaðarins“
- segir Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri ísfélagsins
Þó árið 1999 sé ekki liðið þá má
fullvíst telja að það er þegar orðið eitt
tíðindamesta árið hvað snertir
eignarhald á sjávarútvegsfyrirtækjum
síðan virkur hlutabréfamarkaður
komst á hérlendis. Hæst ber
sameiningu SIF og ÍS en hræringar
hafa líka verið í Básafelli,
Skagstrendingi, ÚA, SH og síðast en
ekki síst ber að nefna hinn svokallaða
Eyjarisa. Þar renna saman tvö rótgróin
Eyjafyrirtæki í eitt, þ.e. Vinnslustöðin
hf. og ísfélagið hf. og taka með sér
Krossanes hf. og Ósland hf. inn í
samrunann. Sigurður Einarsson,
framkvæmdastjóri ísfélagsins, segir að
samruni þessara fyrirtækja hefði líkast
til ekki orðið ef ekki hefði verið fyrir hendi virkur hlutabréfamarkaður.
„Samruni fyrirtækjanna miðast við 1. september 1999 en við gerum ráð fyrir
að í byrjun desember verði haldnir hluthafafundir í fyrirtækjunum fjórum þar
sem gengið verði frá samrunanum," segir Sigurður.
„Svona samruni getur verið nokkuð flókinn en hann hefði örugglega ekki
verið framkvæmanlegur ef hlutabréfamarkaður hefði ekki verið kominn til
sögunnar. Ég held að hlutabréfamarkaðurinn sé orðinn nokkuð þroskaður og
hann gefur tækifæri til enn stærri sameininga í framtíðinni en með því fororði þó
að fyrirtæki eru samkvæmt lögum bundin að því hversu mikið þau mega eiga í
kvóta í einstökum tegundum. Þar liggja takmarkanirnar.“
Þessir tveir stjómendur úr Eyjum hafa í
nœg hom að líta við að koma heim og
saman samruna fjögurra fyrirtcekja í
eitt. Til vinstri er Sigurgeir Brynjar Krist-
geirsson, framkvœmdastjóri Vinnslu-
stöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum og til
hœgri er Sigurður Einarsson, fram-
kvœmdastjóri ísfélagsins hf. í Eyjum.
NGIR 15