Ægir - 01.10.1999, Qupperneq 52
Vistaverur eru þiljaðar með Famos
veggþiljum og skipið er einangrað
með steinull. Upphitun skipsins er
miðstöðvarhitun sem notar kælivatn
frá aðalvélum eða hita frá rafskauts-
katli frá Rafhitun. Farþegasalir og brú
eru loftræst með loftblásurum og er
loftið hitað frá miðstövarkerfi skips-
ins. Fyrir útsog frá snyrtingum er
Klimor blásari, 600 m3 í þilfarshúsi.
Loftræsting fyrir sali, framskip og brú
er Klimor blásari 3000 m3 í klefa
stjórnborðsmegin fyrir framan neðri
sal.
Vöruþilfar
Á afturskipi er vöruþilfarið sem nær
yfir breidd skipsins og er um 6 metrar
að lengd.
Aftast á vöruþiifarinu er vökvaknú-
inn 3 metra breiður skuthleri sem
hægt er að leggja niður við lestun og
losun.
Lestunar- og losunarkraninn er frá
Palfinger af gerðinni PK 1808 MA, 160
kNm. Vinnusvið kranans er 1,5 til 8
metrar og 360°. Kraninn er búinn 2
tonna vírspili. Honum var komið fyrir
stjórnborðsmegin á þaki þilfarshúss.
Vökvadælistöð kranans er frá Vökva-
kerfi ehf., 30 1/min, 280 bör og 18 kW.
Bakborðsmegin aftast á vöruþilfari er
skorsteinshús. I húsinu eru loftblásari
fyrir vélarúm af gerð ALWO, 9000
m3/klst. ásamt hljókútum véla.
250W flóðljós fyrir vöruþilfar er á
skorsteinshúsi.
Úr stjómpúltinu í bríi er gott útsýni fram
fyrir skipið. Ferjan er búin öllum full-
komnustu og nauðsynlegustu siglinga- og
fjarskiptatœkjum nútímaskipa.
Akkeris- og landfestingar
Tvö akkeri eru á skipinu. Annað er í
vasa stjórnborðsmegin á afturgafli
skipsins en hitt fest við skorsteinshús.
Akkerisspilið er stjórnborðsmegin
miðskips, í klefa fyrir framan vöruþil-
far. Það er frá Brusselle og togar 2 tonn
á tóma tromlu. Spilið er rafknúið af 5
kW mótor. í sér rými framan við akk-
erisspilið er vökvaknúin landfesti-
vinda frá Brusselle og Vökvakerfum
ehf. Stjórnun landfestivindunnar er úr
brú.
Vélbúnaður
Vélarúm Sævars er hannað og flokkað
sem mannlaust vélarúm.
Aðalvélarnar eru tvær frá Cummins
af gerðinni N14M. Vélarnar eru fjór-
gengisvélar með afgasblásurum og eft-
irkælingu. Þær eru 400 hestöfl hvor
(294 kW) við 1800 sn/mín. Skrúfur
vélanna eru frá Mekanord, hvor 1100
mm í þvermál, fjögurra blaða og snú-
ast 512 sn/ mín við 1800 sn/mín á að-
alvél. Skrúfurnar eru á vinkildrifi með
gírhlutfallinum 3,51:1. Vinkildrifið er
jafnframt snúningsdrif sem gerir það
mögulegt að snúa skrúfunum um heil-
an hring um lóðréttann ás; út í hvort
borð eða hálfan hring en þá siglir skip-
ið afturábak. Þessi búnaður gerir stýris-
blað óþarft.
Á framaflúttaki véla eru háþrýstar
vökvadælur frá Landvélum. Kælikerfi
aðalvéla er um miðstöðvarkerfi og ut-
Helstu mál og stærðir
Aðalmál:
Mesta lengd (Loa) (m)...............................................22,70
Skráð lengd (m).....................................................20,43
Lengd milli lóðlína (m).............................................22,00
Breidd (mótuð) (m)...................................................6,70
Dýpt að neðra farþegaþilfari (m).....................................2,40
Dýpt að efra farþegaþilfaari (m).....................................4,70
Dýpt að vöruflutningaþilfari (m).....................................3,70
Rými og stærðir:
Eiginþyngd (tonn)....................................................-130
Særými við 2,0 m djúpristu (tonn)....................................-145
Brennsluolíugeymar (m3)..............................................26,4
Ferskvatnsgeymar (m3)................................................11,8
Smurolía og glussi (m3)...............................................2,8
Sjókjölfesta (m3)....................................................15,8
Mæling:
Brúttórúmlestir....................................................127,18
Brúttótonnatala.......................................................149
Nettótonn..............................................................45
Aðrar upplýsingar:
Djúprista..........................................................2,0 m
Reiknaðurtogkrafturvið 2x400 hestöfl.............................8,3 tonn
Áætlaður ganghraði............................................12 sjómílur
Skipaskrárnúmer......................................................2378
52 MCAU
Guöbergur Rúnarsson