Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1915, Page 5

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1915, Page 5
I. Stjórn háskólans. Rektor háskólans var þetta háskólaár (1914—’15) pró- fessor Jón Helgason, kosinn á kennarafundi 17. júní 1914. Deildarforsetar voru kosnir litlu siðar: í guðfræðisdeild: prófessor Haraldur Níelsson. - lagadeild: prófessor Lárus H. Bjarnason. - læknadeild: prófessor Guðmundur Magnússon. - heimspekisdeild: prófessor, dr. phil. Björn M. Ólsen. Þessir deildarforsetar áttu, ásamt rektor, sæti í háskóla- ráði, eins og lög standa til. í byrjun háskólaársins kaus háskólaráðið sjer varafor- seta og hlaut prófessor dr. phil. Björn M. Ólsen kosningu, Ennfremur kaus það sjer skrifara, prófessor Iiarald Níelsson. 11. júní 1915 fjekst konungleg staðfesting á skipulags- skrá lyrir »Bræðrasjóð Háskóla íslands« (sbr. fylgiskjal I). Samkvæmt tillögum læknadeildar fór háskólaráðið (með brjefi dags. 12. júlí 1915) fram á það við fjárlaganefnd Al- þingis, að stofnað yrði dócentsembælti fyrir deildina i sjúk- dómafræði og liffærameinfræði, blóðvalnsfræði og sóttkveikju- fræði og sólti jafnframt um 2000 kr. styrk til áhaldakaupa í vinnustofu þessa kennara. Fjekk sú málaleitun þær undir- tektir, að veittar voru á fjárlögunum 2800 kr. til kenslu i þessum fræðuni siðara árið á næsta fjárhagstímabili (1917). Ennfremur bar háskólaráðið fram fyrir alþingi tilmæli heimspekisdeildar um veitingu fjár til bókakaupa handa

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.