Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1917, Page 5
I. Stjórn háskólans.
Rektor háskólans var þetta háskólaár prófessor theol.
Haraldur Níelsson.
Deildarforsetar voru sem hjer segir:
Prófessor Jón Helgason í guðfræðisdeild,
settur prófessor Óla/ur Lárusson i lagadeild,
prófessor Guðm. Hannesson í læknadeild og
prófessor, dr. phil. Ágúst H. Bjarnason i heimspekisdeild.
Áttu þessir deildarforsetar sæti i háskólaráðinu undir
formensku rektors.
Á þessu varð þó sú breyting á háskólaárinu, að þegar
próf. Jón Helgason, 18. des. 1916, var settur til að gegna hisk-
upsembættinu, sem hann siðar fjekk veitingu fyrir, var dócent
Sigurður P. Sívertsen settur prófessor i hans stað og kosinn
forseti guðfræðisdeildar. t*egar fyrrum ráðherra Einar Arnórs-
son tók aftur við prófessorsembætti frá byrjun febrúar-
mánaðar 1917, var hann kosinn deildarforseti lagadeildar
það sem eftir var háskólaársins, i stað Ólafs Lárussonar.