Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1917, Side 8
6
Tillaga um stofnun dócentsembættis við lækna-
deildina. í gildandi fjárlöguni var styrkur veittur til kenslu
i líffœrameinjrœði og sóttkveikjufrœði og var cand. med.
Stefán Jónsson ráðinn til að hafa kensluna á hendi frá byr-
jun siðara kenslumisseris. Háskólaráðið samþykti á fundi
4. júni að fara þess á leit við Alþingi, að stofnað yrði dóc-
entsembætti í áðurnefndum greinum. Jafnframt samþykti há-
skólaráðið að mæla með því, að cand. med. Stefáni Jónssyni,
sem nú um hríð hefur haft þessa kenslu á hendi, yrði veitt
embættið.
Umsögn um Kommunitetsstyrk. Með brjefi, dag-
settu 14. júní 1917, sendi Stjórnarráð íslands háskólaráðinu
brjef Kenslumálaráðaneytis Dana, dagsett 21. des. 1916, um
forrjettindi islenskra stúdenta til þess að njóta kommunitets-
styrks án tillits til fjárhagsástæðna þeirra, og beiddist um-
sagnar háskólaráðsins og þó sjerstaklega lagadeildar liáskól-
ans um málið. Háskólaráðið fjelst á skilning lagadeildar.
Hafði hún í brjefi, dagsettu 18. júni, tjáð því hann með
svo feldri samþjdrt deildarinnar:
»Með skírskotun til brjefs Ivirkju- og kenslumála-
ráðaneylis Dana, 29. nóv. 1869, verður deildin að vera
þeirrar skoðunar, að rjeltur íslenskra stúdenta til að
öðlast »Kommunitets- og Regensstipendiet« sje eigi
háður efnahag þeirra«.
Húsnæði háskólans. A fundi háskólaráðsins 24.
marz vakti rektor máls á því, að húsnæði háskólans væri
ófullnægjandi, einkum er frá liði, og auk þess bæri brýna
nauðsyn til að sjá stúdentum fyrir boðlegum samkomustað.
í nefnd til þess að athuga þetta mál voru kosnir próf. Har-
aldur Nielsson, próf. Guðm. Hannesson og próf., dr. phil.
Ágúst H. Bjarnason.
Nefndin athugaði málið i samráði við milliþingaforseta
Guðm. landlækni Björnson og skilaði nokkuru síðar eftirfar-
andi áliti: