Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1917, Side 19
17
Kosning rektors og deildarforseta 1917—1918.
A almennum kennarafundi háskólans, sem samkvæmt venju
var haldinn 17. júní, var gengið til rektorskosningar fyrir
háskólaárið 1. okt. 1917 til 30. sept. 1918. Hlaut prófessor,
dr. phil. Ágúsi II. Bjarnason kosningu.
Skömmu siðar kusu deildirnar sjer forseta og voru
þessir kosnir:
Prófessor Sigurður P. Síverlsen í guðfræðisdeild,
prófessor Lárns II. Bjarnason i lagadeild,
prófessor Guðnuindnr Magnússon í læknadeild og
prófessor, dr. phil. Björn M. Ólsen í heimspekisdeild.
III. Kennarar háskólans
og starfsmenn.
Fastir kennarar voru:
í guðfræðisdeild:
Prófessor Jón Helgason, prófessor Haraldur Níelsson og
dócent Sigurður P. Sívertsen.
Sú breyting varð þó á kennaraskipuninni, að prófessor
Jón Helgason ljet af kenslu, er hann var settur biskup (18.
desember 1916); var þá dócent Sigurður P. Sívertsen settur
prófessor í hans stað (20. s. m.) og sama dag var Trgggvi
Pórliallsson, sóknarprestur að Hestþingum í Borgarfjarðar-
sýslu, settur dócent.
Síðar, 23. maí, var Sigurður P. Síverlsen skipaður af
konungi prófessor í guðfræði, en 25. september skipaði
stjórnarráðið Magnús Jónsson, sóknarprest á ísafirði, dócent,
að loknu samkepnisprófi og eftir tillögum dómnefndar (sjá
bls. 19).
3