Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1917, Blaðsíða 20
18
í lagadeild:
Prófessor Lárus II. Bjarnason, prófessor Jón Kristjáns-
son og settur prófessor Ólajur Lárusson.
Þegar Einar Arnórsson um áramótin fjekk lausn fra
ráðherraembætti, var hann frá 1. febrúar 1917 settur pró-
fessor í lagadeild í stað Ólafs Lárussonar, er gegnt hafði þvi
embætti írá þvi er Einar Arnórsson tók við ráðherraem-
bættinu.
í læknadeild:
Prófessorarnir Guðmundur Magnússon og Guðmundur
Hannesson og aukakennararnir Andrjes Fjeldsted, augnlæknir,
Birger Norman Jensen, cand. pharm., Gunnlaugur Claessen,
forstöðumaður Röntgenstofnunar háskólans, Jón Ilj. Sig-
urðsson, hjeraðslæknir, Ólajur Porsteinsson, eyrna-, nef- og
hálslæknir, Slefán Jónsson, læknir, Sœmundur Bjarnhjeðins-
son, prófessor, holdsveikralæknir, Vilhelm Bernhöjt, tann-
læknir og Pórður Sveinsson, geðveikralæknir.
Ásgeir Tor/ason, sem kent hefur efnafræði við lækna-
deild háskólans frá því er hann var stofnaður, andaðist i
lok síðasta háskólaárs, 16. septemher 1916. Ásgeir var fæddur
8. maí 1871 að Varmalæk í Borgarfjarðarsýslu, þar sem þau
hjuggu þá foreldrar hans, Torfi Bjarnason, síðar skólastjöri
í Ólafsdal, og kona hans, Guðlaug Zakaríasdóttir. Stúdent
varð hann vorið 1897 með I. einkunn, en cand. polyt. árið
1903, sömuleiðis með I. eink. Fjekk siðan styrk úr landssjóði
árin 1904 og 1905 til verklegra æfinga í efnarannsóknarstofum
erlendis og kom heim 1906 til þess að taka við efnarann-
sóknarstofunni, er það ár var sett hjer á stofn, og veitti hann
henni forstöðu til dauðadags. Ásgeir kvæntist 18. maí 1907
Önnu Ásmundsdóttur Sveinssonar, cand. philos. í Reykjavik.
í heimspekisdeild:
Prófessor, dr. phil. Björn M. Ólsen, prófessor, dr. phil.
Ágúst H. Bjarnason, dócent Jón J. Áðils, dócent Bjarni Jóns-
son frá Vogi, og sendikennari, mag. art. Ilolger Wiehe.