Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1917, Blaðsíða 21
19
Einkadócentar störfuðu tveir við deildina, dr. phil. Alex-
ander Jóhannesson og dr. phil. Guðmundur Finnbogason.
Starfsmenn voru:
Ritari Jón læknir Rósenkranz og dyravörður Jónas
Jónsson.
Vegna veikinda ritara hefur Halldór Jónasson kennari
gegnt störfum hans í háskólanum að nokkru leyti.
Dyravörður andaðist 2. júlí 1917. Var þá ekkju hans
falið að sjá um djrravarðarstörfin, uns dyravörður yrði skip-
aður að nýju.
Jónas Jónsson var fæddur 19. febrúar 1850 og voru
foreldrar hans Jón bóndi Jónsson að Hörgsholti í Arnessýslu
og kona hans Guðrún Snorradóttir.
Jónas heitinn var umsjónarmaður alþingishússins um
mörg ár og auk þess dyravörður háskólans frá því hann
tók til starfa. Siðari árin vann hann i frístúndum sínum at
kappi miklu að þvi að rannsaka og rita um íslenskan sálma-
söng frá upphafi siðbótar til síðustu aldamóta og naut í því
skyni stjrrks úr landssjóði árin 1912 og 1913. Hann kvæntist
1. nóvember 1879 Kristínu Hendriksdóttur, verslunarmanns í
Rej'kjavík, Símonarsonar kaupmanns Hansen.
Samkepnispróf
um dócentsembættið í guðfræði.
18. des. 1916 tilkynti Stjórnarráðið guðfræðisdeildinni,
að það hefði sett prófessor Jón Helgason biskup yfir íslandi
og æskti þess, að tillögur kæmu frá deildinni um, hvernig
ráðstafa skjddi prófessorsembætti hans.
Deildin lagði til, að dócent Sigurður P. Sívertsen jtöí
settur til að gegna prófessorsembættinu, en sjera Tryggvi
Þórhallsson yrði settur til að gegna dócentsembættinu, sem
þá losnaði.
En jafnframt tók deildin það fram, að þessi tillaga um
dócentsembættið væri að eins til bráðabirgða, en eklci end-