Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1923, Page 22
20
2. Fór með yfirheyrslu og viðtali yfir gríska málfrœði með
eldri nemendum og 94 bls. i Auslurför Kyrosar og
Markúsar guðspjall, 5 stundir á viku.
3. Las með íslenskunemendum miðaldalatínu. Monumenta
historica Norvegiae bls. 1—40.
Dr. phil. Alexander Jóhannesson:
1. Flutti fyrirlestra um sögu íslenskrar tungu, 1 stund á
viku bæði misserin.
2. Fór yfir skáldakvœði, 1 stund i viku bæði misserin.
3. Hafði æfingar i fornsaxnesku, 1 stund í viku fyrra misserið.
4. Hafði æfingar í gotnesku, 1 stund í viku siðara misserið.
5. Flutti fyrirlestra um nýustu rannsóknir á íslenskri tungu,
1 stund i viku bæði misserin.
»
VII. Próf.
Guðfræðisdeildin
í lok fyrra misseris gengu 3 stúdentar undir embættispróf
í guðfræði og stóðust það allir.
Skriflega prófið fór fram dagana 31. janúar til 3. febr.
Kandidatarnir luku allir próflnu 14. febrúar.
Yerkefni við skriflega prótið voru:
I. í gamla testamentisfræðum:
Sálmurinn 110.
II. I nýja testamentisfræðum:
Mannssonarheitið, að því leyti sem vjer þekkjum það
frá ritum siðgyðingdómsins og eins og Jesús notaði það
samkvæmt guðspjöllunum.
III. 1 samstæðilegri guðfræði: