Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Page 46

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Page 46
46 13 við framhaldsnám. Gegndi læknisstörfum í Ólafsvikur- liéraði sumurin 1912 og 1913, í fjarveru liéraðslæknis. Hér- aðslæknir í Dalahéraði frá 1. okt. 1913 til 31. maí 1929. Hér- aðslæknir í Berufjarðarhéraði frá 1. júní 1929 til 1. nóv. 1934, en þjónað Ólafsvíkurhéraði síðan. Kvæntist 18. maí 1936 Guðlaugu, dóttur Sigurðar Sigurðs- sonar liéraðslæknis i Búðardal og konu hans Ragnheiðar Vig- fúsdóttur. Fór utan 1931 og dvaldist 5 mánuði við nám í Dan- mörku, en 1 mánuð í Hamborg. Varði doktorsritgerð um heilaslag og arfgengi við Háskóla Islands 12. okt. 1935. X. LÁTNIR HÁSKÓLAKENNARAR Prófessor Sæmundur Bjarnhéðinsson fæddist 26. ágúst 1863 í Böðvarshólum í Vesturhópi í Húnavatnssýslu. Foreldrar Iians voru Bjarnhéðinn Sænnmdsson bóndi og kona hans Kolfinna Snæhjarnardóttir. Þrjú af hörnum þeirra urðu þjóð- kunn: Sæmundur heitinn prófessor, frú Briel Bjarnhéðins- dóttir og Bjarni Bjarnhéðinsson, sem lengi var verslunar- stjóri á Hvammstanga. Hefir ættinni verið margt vel gefið. Föður sinn missti próf. Sæmundur á unga aldri, en snemma har á því að pilturinn var mjög bókhneigður, svo að föður lians hafði komið til hugar að setja hann til mennta. Eftir fráfall hans voru litlar horfur á, að neitt vrði úr þessu, þvi að ekkjan var efnalitil. Var það úr, að Sæmundi var komið til Júlíusar Halldórssonar héraðslæknis í Klömbrum, og átli hann að læra þar lyfjabúðarstörf. Vafalaust liefir það orðið piltin- um að láni að komast á heimili þessa mennta- og dugnaðar- manns, þó að Iiann ynni þar að ýmsu, sem fvrir féll, auk lyfja- húðarstarfa. Það mun þó einkum hafa verið Bjarni bróðir hans, sem stvrkti hann lil náms á latínuskólanum. Gekk hon- um námið vel, og var hann oftast „dux“ í sínum bekk, enda bæði iðinn og reglusamur. Á skólaárunum átti liann gott at- hvarf hjá Halldóri Friðrikssvni vfirkennara og naut þar

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.