Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Side 5
fræði, þó að ýmsir gerðu það eftir því sem tími vannst til frá
öðrum störfum. Hér átli því að skipta um þegar allt í einu
kom heil háskóladeild, sem aðallega átti að sinna þessum
málum. Að vísu var deildin ekki stór i fyrstu og er ekki ennþá,
en samt hefir skipt um og er nú svo komið, að miðstöð is-
ienzkra fræða er nú að flvtjast, ef hún er ekki alflutt, heim
til íslands. Hingað liafa nú um mörg ár komið erlendir fræði-
menn til þess að kvnna sér íslenzkt mál og íslenzk fræði. Ein-
mitt nú þessa dagana er að hefjast námsskeið í íslenzkum
fræðum fyrir erlenda stúdenta og í ráði er að svipuð náms-
skeið verði upp tekin, ef til vill á ári hverju í náinni framtið.
Ég er þess fullviss, að starf lieimspekisdeildar liáskólans liefir
verið, og á eftir að verða enn meir, til þess að efla vinsældir
háskólans innanlands og mun verða meir en margt annað til
þess að auka hróður háskólans, og alls landsins, með erlend-
um þjóðum.
Sjálft nafn deildarinnar, heimspekisdeild, er ekki réttnefni
nema að nokkru leyti. Nafnið mun vera gamall arfur frá er-
lendum háskólum, þar sem philosophian eða heimspekin sat
lengi i öndvegi. En liér liefir líka verið kennd heimspeki, allir
stúdentar nema hér forspjallsvisindi, og heimspekiskennar-
inn liefir gert sitt iil þess, að öll þjóðin gæti kynnzt þróun
vísindanna og því sem efst er á baugi um heimsmynd visinda-
mannanna.
Ég liefi nefnt hér heimspekisdeildina fyrst vegna þess, að
það var hún, sem átti að vera og varð smiðshöggið á stofnun
Háskóla íslands.
Hinar deildirnar urðu beint áframhald af þeim skólum, sem
hér voru til áður, en störfuðu hver i sinu lagi.
Guðfræðisdeildin, með Prestaskólann að baki, á sér lengsta
sögu. Hún hefir átt því láni að fagna, að til hennar hafa valizl
ágætir kennarar og fræðimenn, sem að mörgu levti hafa breytt
og sett svip á preslastétt landsins. Frá deildinni hafa komið
ýms rit guðfræðilegs og kirkjusögulegs efnis, sem einnig sýna,
að kennarar deildarinnar hafa ekki legið á liði sínu.
Læknadeildin tók við af Læknaskólanum og var lengi vel
r