Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Side 74
74
Hafi enginn fengið yfir helming atkvœða, skal kjósa af nýju um
þá tvo eða fleiri, er flest atkvæði fengu, og er sá þá rétt kosinn, sem
flest atkvæði fær. Séu atkvæði jöfn, ræður hlutkesti.
Rektor má endurkjósa, en eklci er hann skyldur að taka við endur-
kjöri. Rektor tekur við .störfum með byrjun háskólaárs.
Birta skal stjórnarráðinu úrslit rektorskosningar.
Nú fellur rektor frá eða verður að láta af störfum áður en rektors-
ár hans er liðið, og skal þá kjósa nýjan rektor svo fljótt sem því
verður við komið, en varaforseti háskólaráðs gegni rektorsstörfum
þangað til. Skal hinn nýi rektor kosinn til 3 ára, en það, sem eftir
er háskólaárs, er liann tekur við, skal teljast sem eitt ár.
4. gr.
Reklor og forselar deildanna 5 eiga sæti í háskólaráði. Rektor er
sjálfkjörinn forseti ráðsins. En varaforseta kýs háskólaráðið sér sjálft
úr sínum hópi.
Háskólaráðið heldur fundi eftir þörfum. Æski tveir menn úr há-
skólaráði fundar, er rektor skyldur að hoða til þess fundar. Svo er
og, ef einn jjriðji hluti kennara æskir fundar. Sé fundur haldinn eftir
ósk kennara, er ekki eiga sæti í ráðinu, eiga hvatamenn fundar rélt
á að senda jafnmarga fulltrúa á fundinn og margir eru menn í há-
skólaráðinu, og hafa þeir fulltrúar þá málfrelsi, en atkvæðisrétt eiga
þeir ekki.
5. gr.
Háskólaráðið setur nánari reglur um starfssvið sitt og rektors, og
eru þær reglur gildar, er staðfesting stjórnarráðs kemur til.
II. KAFLI
Háskólakennarar og háskáladeildir.
6. gr.
Kennarar háskólans eru prófessorar, dósentar og aukakennarar, en
aukakennarar eru þeir keiinarar nefndir, sem jafnframt gegna em-
bættum eða öðrum aðalstörfum.
Konungur skipar prófessorana, en ráðherra dósenta og aukakenn-
ara, að svo miklu leyti sem aukakennarar eru sérstaklega skipaðir
til kennslunnar.
Áður en kennari er settur eða skipaður við háskólann, skal ávallt
leita umsagnar hlutaðeigandi liáskóladeildar um kennaraefnið.
7. gr.
Hver háskóladeild velur úr sínum hópi deildarforseta (dekanus),
og er hann jafnframt sjálfkjörinn í háskólaráðið.