Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Side 77
11
IV. KAFLI
Próf.
21. gr.
Háskólapróf skulu haldin á þeim tíma, sem reglugerð háskólans
ákveður.
22. gr.
Stúdentar mega ganga undir embættispróf, þegar þeim sýnist, hafi
þeir áður staðizt fyrirskipuð undirbúningspróf, þar á meðal próf i
heimspekilegum forspjallsvísindum, og ieyst af hendi fyrirskipaðar
æfingar.
Próf í heimspekilegum forspjallsvísindum er öllum stúdentum
heimilt að ganga undir eftir tveggja missira nám við háskólann, en
skylt að hafa lokið því að minnsta kosti tveim missirum áður en
þeir ganga undir embætlispróf.
23. gr.
Þeir, sem ganga vilja undir embættispróf, skulu hafa tilkynnt það
ritara háskólans að minnsta kosti 3 vikum áður en próf byrjar. Um
leið og þeir gefa sig fram, skulu þeir gjalda 20 krónur til háskóla-
sjóðs, og tekur ritari háskólans við fénu.
Hætti stúdent við að taka próf, eftir að hann hefir látið innrita
sig til prófs, á hann heimtingu á að fá prófgjaldið endurgoldið, hafi
hann gefið sig fram við ritara áður en prófið byrjar.
Gangi stúdent frá embættisprófi, verður honum ekki endurgoidið
prófgjaldið.
24. gr.
Stúdentar, sem byrjað hafa á embættisprófi, en gengið frá þvi, geta
ekki gefið sig fram til prófs af nýjú fyrr en eftir ár, nema sérstakar á-
stæður mæli með því.
Stúdent, sem stenzt ekki embættispróf, getur ekki fengið að ganga
undir próf aftur fyrr en að ári liðnu.
Æski stúdent, sem staðizt hefir embættispróf, að endurtaka prófið,
til þess að öðlast hærri prófseinkunn, er honum það heimilt, en þó
ekki fyrr en að ári liðnu.
Stúdent greiðir prófgjald svo oft sem hann segir sig til prófs.
25. gr.
Háskólakennararnir standa fyrir öllum prófum, en hver deild ræð-
ur fyrirkomulagi prófanna hjá sér.
Öll próf skulu haldin i heyranda hljóði.
G