Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Blaðsíða 25
23
útgáfu sinni. Yfirlýsing háskólaráðs var birt í öllum dagblöð-
um bæjarins.
IV. KENNARAR HÁSKÓLANS
Kennarar í guðfrœðideild og kennslugreinar þeirra:
Prófessorar:
Björn Magnússon: Kristileg siðfræði, kennimannleg guðfræði
(helgisiðafræði, trúkennslufræði, verklegar æfingar i barna-
spurningum), Nýjatestamentisfræði (trúarsaga Nýja testament-
isins, ritskýring Jóhannesarguðspjalls og Jóhannesarbréfa,
Hebreabréf, samtíðarsaga Nýja testamentisins), æfingar í bréfa-
og skýrslugerð presta.
Sigurbjörn Einarsson: Kristileg trúfræði, almenn trúarbragða-
fræði, kennimannleg guðfræði (prédikunarfræði, sálgæzlufræði,
verklegar æfingar í ræðugerð), Nýjatestamentisfræði (ritskýr-
ing Opinberunarbókarinnar), trúarlærdómssaga.
Magnús Már Lárusson: Kirkjusaga, Nýjatestamentisfræði
(Inngangsfræði Nýja testamentisins, ritskýring Postulasögu og
Pálsbréfa annarra en hirðisbréfa).
Þórir Kr. Þórðarson: Gamlatestamentisfræði (ritskýring, trú-
arsaga Israels, Inngangsfræði Gamla testamentisins, Israels-
saga), Nýjatestamentisfræði (ritskýring samstofna guðspjall-
anna, hirðisbréfa, Pétursbréfa og Jakobsbréfa).
Hafði leyfi frá kennslu þetta háskólaár. Kennslu hans annað-
ist séra Haráld Sigmar frá Seattle, Bandaríkjunum.
Aukakennarar:
Kristinn Ármannsson rektor: Gríska.
Sigurður Birkis söngkennari: Söngur og tón
Kennarar í læknadeild og kennslugreinar þeirra:
/ lœknisfrœði:
Prófessorar:
Níels Dungal: Sjúkdómafræði, meinafræði, réttarlæknisfræði.
Jón Steffensen: Líffærafræði, vefjafræði, fósturfræði.