Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Blaðsíða 97
95
Bridge var einnig talsvert iðkað á stúdentagörðunum og fór á vetr-
inum fram sveitakeppni, sem bridgenefnd stúdentaráðs annaðist. Tóku
þátt í henni 4 sveitir, skipaðar 5—6 stúdentum hver, og stóð keppnin
yfir í 3 kvöld. Lyktaði henni með sigri sveitar Gunnars Jóhanns-
sonar, en í henni voru auk hans þeir Loftur Baldvinsson, Guðmundur
Oddsson, Kristján Össur Jónasson og Guðmundur T. Magnússon.
í bridge-nefndinni voru þeir Ólafur G. Einarsson, Jóhann Níelsson
og Guðmundur T. Magnússon.
V. norræna málanámskeiðið.
Eins og kunnugt er hefir SHÍ á síðustu árum tekið vaxandi þátt í
samstarfi norrænu stúdentasambandanna. Eitt af sameiginlegum verk-
efnum þeirra eru málanámskeiðin svonefndu, sem haldin eru til skipt-
is á Norðurlöndunum, og fer þar fram kennsla í tungu og bókmennt-
um fyrir stúdenta frændþjóðanna. Þessi námskeið höfðu áður verið
haldin í Danmörku (2), Noregi og Svíþjóð, en fyrir u. þ. b. tveim ár-
um komu fram sérstakar óskir um, að sem fyrst yrði efnt til slíks
námskeiðs hér, og hefir áhugi fyrir því farið sívaxandi allt upp frá því.
Þegar athugaðir voru möguleikar á að halda námskeiðið í Háskóla
íslands, kom strax í ljós, að slíkt krefðist mikils undirbúnings og
yrði mjög kostnaðarsamt. Tókst ekki fyrr en á síðasta vetri að koma
því í kring, að námskeiðið yrði haldið hér. Annaðist stúdentaráð
sjálft allan undirbúning málsins framan af, en í vor var síðan tekið
upp samstarf við íslenzkudeild og íslenzkunema um nokkra þætti þess,
einkum væntanlega kennslutilhögun, og störfuðu að því þeir próf.
Hreinn Benediktsson, Ólafur Pálmason, stud. mag., og af hálfu stúd-
entaráðs Finnur T. Hjörleifsson, stud. mag. Skömmu áður en nám-
skeiðið hófst lögðu þeir niður störf vegna ágreinings við stúdentaráð
út af ráðningu launaðs starfsmanns til að sjá um framkvæmd nám-
skeiðsins. Fól SHÍ nefnd 3ja stúdenta að annast í samráði við ráðið
framkvæmd námskeiðsins.
V. Norræna málanámskeiðið var síðan sett fimmtudaginn 10. sept.
1959, en að morgni þess dags komu þátttakendur, 7 danskir stúdent-
ar, 1 finnskur og 7 sænskir, til landsins með m/s Gullfossi; einn norsk-
ur stúdent tók einnig þátt. Voru þeir allir, svo og rektor háskólans,
prófessorar íslenzkudeildar og nokkrir stúdentar, mættir til kaffi-
drykkju í baðstofu „Nausts“ þann dag. Þar bauð formaður stúdenta-
ráðs þátttakendur velkomna, en síðan flutti rektor, dr. Þorkell Jó-
hannesson, setningarræðu. Að þessari athöfn lokinni skoðuðu norrænu
stúdentarnir bæinn, en næsta dag hófst kennslan.
Kennslunni í tungu og bókmenntum var þannig háttað, að fyrstu
4 vikurnar var einungis kennd íslenzk tunga, en kennslustundir í