Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Blaðsíða 103
101
fessora háskólans eftir undirskriftum, og ritaði meiri hluti þeirra
undir áskorunina.
í háskólaráði var málinu fylgt eftir af fulltrúa stúdenta, Birgi ísl.
Gunnarssyni, og veitti háskólaráð leyfið fyrir sitt leyti. Menntamála-
ráðherra lagði hins vegar algjört bann við því, að vínveitingar mættu
fara fram á staðnum, svo sem jafnan áður hafði tíðkazt, og var fót-
unum þannig að mati stúdentaráðs svipt undan fagnaðinum. Þessari
ákvörðun ráðherrans tókst ekki að fá breytt, þótt fast væri eftir
leitað. Þótti stúdentum að vonum súrt í broti að þurfa að sætta sig
við þessar lyktir málsins.
Gagnrýnin á menntamálaráðherra.
í 1. tbl. Stúdentablaðs, er út kom í febr. 1959, birtist grein, sem
bar nafnið „Pereat“, og var hún að efni til gagnrýni á menntamála-
ráðherra vegna samskipta hans við stúdentaráð. Út af grein þessari
veitti háskólaráð stúdentaráði áminningu, sbr. bls. 22. Nánari grein
er gerð fyrir þessu máli í Vettvangi stúdentaráðs, okt. 1959, bls.
20—23.
Landhelgismálið.
Um landhelgismálið var haldinn almennur stúdentafundur, eins og
nánar er getið hér að framan.
Þá hefir utanríkisritari, Hörður Sigurgestsson, haldið áfram að
kynna málið, og sent um 80 stúdentasamtökum hvítar bækur og
bæklinga, er út hafa komið um málið. Með sendingum þessum hefir
fylgt bréf frá SHÍ, þar sem hefir verið lögð áherzla á réttmæti þeirra
ráðstafana, sem til var gripið fiskstofninum til verndar.
Lánasjóður stúdenta.
Á undanförnum árum hefir fjárskortur mjög komið í veg fyrir,
að lánasjóðurinn kæmi stúdentum að því gagni, sem æskilegt verður
að telja og til var ætlazt við stofnun hans.
Fyrir ítarlega rökstuddar og margendurteknar beiðnir stúdenta-
ráðs og stjórnar lánasjóðsins fékkst fjárveitingin hækkuð nokkuð
haustið 1958, en hún hafði verið óbreytt, 650 þús. krónur, um skeið.
Á fjárlagafrumvarpi því, sem lagt var fyrir Alþingi 1959 var gert
ráð fyrir enn frekari hækkun upp í 900 þúsund krónur. Meðan málið
var í meðförum þingsins, voru enn gerðar ráðstafanir til að fá fram-
gengt hækkun. Þetta bar þann árangur, að framlag til lánasjóðsins
á fjárlögum þessa árs var endanlega ákveðið 1 milljón króna og