Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.02.1923, Blaðsíða 31
Tíraarit lögfræðinga og hagfræðinga 77
Mjólk, ostuv og' eg'g: 3(if> 1. mjólk, 20 kg-. mysuortuv, 6'/„ kg. mjólk-
urostur og 156 stk. eg'g.
Kjöt og slátur: 117 kg. kjöt, innan úr 6 sauðum og 6 dilkum.
Fiskur: 410 kg. nýr fiskur, 104 kg. saltfiskur og 101 kg trosfiskur.
Fatnaður liefir verið áætlaður þannig: karlraannsfatn-
aður, kvenfatnaðar, fatnaður á börnin og efni í nærfatn-
að hefir verið áætlað alls 170 kr. Skófatnaður er stígvél
(1 karlmanns, 1 kvenmanns og 4 barna) og svo sólningar
(3 á karlmannsstígvélum, 2 á kvenstígvélum og 5 á barna-
stígvélum). Kostnaður við þvott er talinn 65 kg. af sápu
(Vs grænsápa og */2 stangasápa) og 12 kg. af sóda.
Eldsneyti og ljósmeti hefir verið gert 1 tonn af kolum,
180 1.’ af steinolíu og 240 m3 af gasi.
Húsnæði er gert 3. herbergja íbúð fyrir 25 kr. um
mánuðinn.
Undir sköttum er talið aukaútsvar, tekjuskattur, prests-
og kirkjugjald og ellistyrktarsjóðsgjald.
Loks eru önnur útgjöld, sem ekki hefir verið gerð
nein sundurliðuð áætlun um, heldur eru þau látin nema
afganginum, sem eftir verður af tekjunum þegar búið er
að telja alt hitt.
Þá skal skýrt frá, hvernig farið hefir verið að því
að finna útgjaldaaukninguna á hverju ári.
Matvörurnar hafa allar verið taldar í skýrslunum í
Hagtíðindum, nema slátur og mör, sem upplýsingar hafa
fengist um hjá Sláturfélaginu.
Sama máli er að gegna um eldsneytis- og ljósmetis-
flokkinn. Verðið á kolum og steinolíu er í Hagtíðindum
og verðið á gasi hefir verið fastákveðið. Það er því ekki
annar vandinn en að reikna út útgjöldin til hverrar vöru
eftir verðinu á hverjum tíma.
Aftur á móti er vandinn miklu meiri þegar kemur
til fatnaðarins. Verðið á sápu og sóda hefir verið gefið
upp í Hágtíðindunum og veldur því engum erfiðleikum.
En öðru máli er að gegna um föt og skófatnað. Um slíkt
eru engar skýrslur fyrir hendi og það er æfinlega erfitt
að fá slíkar skýrslur fyrir löngu liðna tíma. Mér hefir