Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.02.1923, Side 59

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.02.1923, Side 59
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 105 þá komum vér að r é 11 i n d u m f o r e 1 d r a og skyldum barna. Verður þá fyrst fyrir það vald, sem for- eldrum er heimilað yfir börnunum, og er það í lögum nefnt foreldravald. Frá öndverðu hefir foreldrum verið heimilað þetta vald, sem fyrst og fremst er í því fólgið, að þau geta ráð- ið dvalarstað barnanna. Foreldrarnir geta haft börnin hjá sér eða komið þeim fyrir annarstaðar, og færist þá foreldravaldið að nokkru leyti yfir til þess, sem tekur barnið. Á lýðveldistímabilinu vai' foreldravaldið miklu víð- tækara en nú á dögum, og var þá eingöngu í höndum föð- ur. Móðir réði þar engu. þó mátti móðir, ef hún var ekkja, fatsna dóttur sína. En einmitt á þessu sviði náði foreldravaldið lengst. Faðir gat þröngvað dóttur til hjú- skapar, án þess að hennar vilji réði þar nokkru. þetta stafar eflaust af því ríka ættarsambandi, sem var í fom- öid. Með þessu móti gat ættin komið í veg fyrir, að nokk- ur kæmi í ættina, sem henni var enginn sómi eða styrk- ur að. Eftir kristni, þegar kirkjan lét þessi mál til sín taka, varð á þessu breyting, og samþykki stúlkunnar þá alt af krafist. Annars gat þetta foreldravald í fornöld náð svo langt, að það mátti bera börn út, og stóðu þau lög óhögguð fram yfir kristnitökuna. En barnaútburður mun aldrei hafa tíðkast mikið hér á landi, og nokkru eftir kristni var útburður bannaðui'. Foreldrar höfðu hirtingarvald yfir börnum sínum í fornöld, en máttu ekki örkumia þau. þetta hii*tingarvald hafa foreldrar enn, samkv. gamalli tilskipun frá 3. júní 1746, um húsaga. Foreldravaldið er hjá báðum l'oreldrum saman, séu þau samvistum, 20. gr. 1. 57, 1921, sbr. 3. gr. 1. nr. 60, 14. maí 1917, um lögræði. Séu foreldri skilin, — án þess að hafa fengið skilnaðarleyfi, — hefir hvort foreldri for- eldravald yfir þeim börnum, sem á vegum þess eru. Hafi þau fengið leyfi til skilnaðar, er gjörð ráðstöfun um for-

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.