Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Page 52

Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Page 52
50 og ilt að eiga við hana, einkum var það frágangssök að taka> kvarnir úr henni. Sýnishornið, sem ég fékk, hafði veiðzt á Eskifirðí. síðast í júlí, síldarnar, sem rannsakaðar urðu, voru 393 að tölu.. Eins og venja er til, var síld þessi jafnaðarlega miklu smærri en síld sú, sem veiðist við Norðurland, en þó er þess að geta, að' síldin, sem mér var send, hefur að öllum líkindum verið af smærrii endanum. Meðallengdin var 27.74 cm, og sé síldinni skift niður íi 2 cm stærðarflokka, verður útkoman þessi: Lengd: Fjöldi: °/o 33—34 12 3.0 31—32 12 3.0 29—30 83 21.1 27—28 126 32.1 25—26 130 33.2 23—24 28 7.1 21—22 2 0.5 Samtals: 393 100.0 Því miður voru ekki tök á því að ákvarða aldur á þessarí síld, en um hana get ég þó sagt, að engin hennar var með þroskuð kynfæri, og ekkert af henni leit út fyrir að hafa hryngt á árinu. Haft hef ég þó fregnir af því, að sild hafi hrygnt fyrir austan, og skal alls ekki borið á móti því, að svo hafi verið. Því miður he£ ég ekki getað náð í neytt af þeirri síld. Seinna i haust kom síldarsending til mín að austan, en því miður stóð svo á, að ég var erlendis þegar sendingin kom, og fékk ég því ekki að vita hvar eða hvenær hún veiddist, þær upp- lýsingar hafa farist fyrir af einhverjum óhöppum. Sú síld var dálitið stærri en síldin, sem veiddist síðastliðið sumar, meðallengdin var um 28.40 cm. Megnið af henni var 25—30 cm á lengd (yfir 70'7o). c. Norðurland. Taflan, sem hér fer á eftir, sýnir hve mikið af sild hefur verið mælt við Norðurland sumarið 1932, bæði eftir stað og tíma. Mánuðunum er hér, sem víða annars staðar við rannsóknirnar, skipt í tíu daga bil, og þýðir því júlí 3 síðasta þriðja hlutann af júlí, ágúst 1 fyrsta þriðja hlutann af ágúst, o. s. frv. Samtals hefur verið mælt 5581 síld, á tímabilinu frá 20. júlí til 10. september.

x

Ársrit Fiskifélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Fiskifélags Íslands
https://timarit.is/publication/590

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.