Stúdentablaðið - 15.12.1992, Page 5
INNGANGUR
Veturinn 1991-1992 stóð Stúdentaráð Háskóla íslands fyrir smá-
sagnasamkeppni þar sem þátttökurétt höfðu allir nemendur skólans. Alls
bárust 59 sögur og hér birtast þær 11 sögur sem dómnefnd kaus að verð-
launa. Þar á meðal er vinningssagan, „Innkaupaferð“, eftir Kristján B.
Jónasson.
Eins og gefur að skilja eru sögurnar ólíkar bæði hvað varðar stíl og
efni. Einn höfundur skrifar tilbrigði við alþekkt ævintýri, annar lætur
dægurlag hljóma gegnum söguna, sá þriðji man eftir skáldi sem hugsaði
mikið um dauðann. Raunar má segja að dauðinn sé nálægur í flestum
sögunum. Þannig er maðurinn með ljáinn á ferli uppá Landakotshæðinni
í „Frásögu Kristjáns Jónssonar“; í „Lífsbroti“ er fugl, sem syngur ekki
framar, jarðsunginn í vindlakassa og Daniel Santos finnst niðurdrepandi
að liggja í líkhúsi með merkisspjald á tánni. Dauðinn er þannig með ýmsu
móti eins og vera ber.
„Innkaupaferð“ er öðru frernur veisla fyrir augað, hún er helgidómur
hins sýnilega. Hver lýsingin rekur aðra, smáatriðin hrannast upp og
mynda umgjörð þessarar undarlegu innkaupaferðar. Sagan er uppfull af
eftirvæntingu og dulúð: eftirtekt. Að baki býr svo óhugnaður sem opin-
berast ekki fyrr en í lok sögunnar.
Dómnefnd keppninnar skipuðu Ami Sigurjónsson bókmenntafræð-
ingur og skáldin Kristín Omarsdóttir og Ulfliildur Dagsdóttir. Kann ég
þeim bestu þakkir fyrir vel unnin störf.
Stúdentaráð H.Í.,Bóksala stúdenta og Námsmannalína Búnaðarbank-
ans gerðu þessa útgáfu mögulega og er hún gjöf frá þessum aðilum til
stúdenta.
Eiríkur Guðmundsson
umsjónarmaður smásagnasamkeppni SHI
3