Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Síða 18

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Síða 18
veldlega, að menn kæmust ekki upp með að æsa til styrjalda nú á dögurn, en þess í stað bað almenningur hreinlega um að láta ljúga að sér. Örn fyllli út eyðublaðið meðan hann var í uppnámi og gerði það þess vegna vitlaust sem hann uppgötvaði ekki fyrr en um seinan, sem varð aftur til þess að hann varð af námslánum næsta árs. - Hæ, Öm. Örn leit upp og sá Steinunni, stúlku sem lærði frönsku við Háskólann. - Nei, sæl og blessuð. Hvað segirðu nú goll? Langt síðan. - Allt í fína, svaraði hún. Hún tók oft eftir því þegar hún talaði við Örn að þau virtust ekki tala sama mál. - Jæja, ég verð að þjóta, sagði Steinunn. - Hvað, strax? - Já, ég er að verða of sein, sé þig seinna. Hún flýtti sér út úr nemendaskrá og út um norðurútganginn, síðan eftir trjágöngunum niður í félagsstofnun. Hún ætlaði að kaupa þar blý sem hún þurfti ekki á að halda. Hún valdi blýstaukinn vandlega nteðan hún fylgdist með afgreiðsluborðinu. Þar sá hún manninn sem hún var raunverulega komin til að hitta. Fyrst hann var ekki að gera neitt, gekk hún til hans og lét hann selja sér blýstaukinn. - Sæl, Steina. Ætlarðu að fá eitthvað fleira en þetta? spurði sölumað- urinn. - Nei, ekki núna, svaraði hún. Hún stóð og horfði ntagnvana á hann stinga blýstauknum í lítinn plastpoka og augnablikið hverfa í sortann. Hún horfði í augu hans meðan hann rétti henni pokann. - Sextíu og þrjár krónur. O, guð, hugsaði hún. Hann er svo myndarlegur. Og svo yfirvegaður og rólegur. Steinunn þoldi ekki menn sent voru síkvikir, eins og þeir væru með njálg. Það var annað en hann Þorsteinn. Hann þorði alveg að mæta augnaráði hennar. Hann sagði aldrei neitt af hvatvísi, heldur valdi orð sín vandlega. - Gjörðu svo vel, sagði hún og rétti Þorsteini einn grænan, svo hann þurfti að gefa henni til baka. Síðan gekk hún á braut. Hún vonaði að ein- hvem daginn myndi hann bjóða henni út. Hún þorði ekki að taka neitt frumkvæði sjálf. Hún íntyndaði sér að þau væru hjón. Þau l'æru í langt ferðalag eitthvert austur á land, jafnvel yfir sandana. Þá þyrftu þau að aka langt og lengi. Roulir loin et longtemps... 16

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.