Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Qupperneq 37

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Qupperneq 37
KRISTÍN BRIEM: lífsbrot greinarnar og trén og allur skógurinn varði jörðina sólu en sterkustu geislarnir náðu samt að ylja henni og stúlkunni sem þræddi stíga svörtustu afríku handan götunnar heima. hún var veiðimaður vopnuð kræklóttu spjóti og elti ósýnilega bráðina hljóðlega, með pírð augu og spenntan lík- ama, læddist, elti en vissi samt allan tímann að hún mundi ekkert veiða því hún var bara að þykjast vera veiðimaður en var bara lítil stúlka, þá teygði trjárót sig í fót hennar og hún hnaut og hruflaði sig á olnboganum, fugl svaf í laufbeði en er stúlkan gætti að sá hún að hann mundi aldrei framar vakna og hún vissi hann syngi ekki heldur meir. bjó um hann í rauðflauelsvindlakassa gerðist prestur söng hann til himna í jarðarför óskaði honum englafuglavængja bað hann fengi geislabaug og syngi fegurra en nokkru sinni legði síðan sóleyjakrans við kvistakross dag einn átti stúlkan erindi við skóginn en vildi náttúrlega líka vita ör- lög l'ugls hvort hann væri ef til vill farinn. hún grófst fyrir um það en er hún leit ol'an í flauelsklædda líkkistuna var hann enn þar, kyrr. en þrátt fyrir að honum auðnuðust hvorki englafuglavængir né heldur geislabaugur gerði það ekki til því hann var ekki einn. inní hann gengu þúsund og útum hann annað þúsund ormar og þeir voru allir utanum hann og inní honum og útúr honum því þeim þótti vænt um fugla sem ekki fengu englafuglavængi og stúlkan gladdist fyrir þeirra hönd. 35

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.