Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Qupperneq 40

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Qupperneq 40
Niðri í kjallara var stór tvöföld rúða, alveg mátuleg í gluggann vof- unnar. Oft var talað um að setja nýju rúðuna í. En það hafði bara enginn tíma til þess. Þá sem höfðu tíma vantaði verkfæri. Þá sem höfðu verkfæri vantaði peninga. Það hefði líka verið dálítið leiðinlegt að vita aldrei úr hvaða átt vindurinn blés. Svo var hætt að hugsa um þetta og Gluggavofan fékk að vera kyrr í sprunguhúsinu sínu og leika á gylltu flautuna sína og sveifla síða hvíta hárinu sínu sem náði niður á tær. Og á nýjársnótt fékk hún kertaljós í gluggann sinn og ljósið sveigði sig og teygði og dansaði á kveiknum þegar Gluggavofan lék fallegu lögin sín og snjókomin dönsuðu líka úti og norðurljósin dönsuðu hátt yfir húsþakinu. Svo var það einn daginn að Ljúfa hafði stórfréttir að segja. - Mamma, Gluggavofan er búin að eignast unga! Marga. Komdu bara og hlustaðu. Við hlupum inn. Það voru komnar margar nýjar sprungur í rúðuna og krakkar Gluggavofunnar tístu og flautuðu í þeim öllum. Margar nýjar, mjóar raddir heyrðust og allar reyndu þær að hafa hærra en mamma þeirra. Gluggavofan okkar hlaut að vera ánægð með þessi tónelsku börn. Það lá líka vel á henni. Allan daginn var glaumur og gleði og sann- kölluð listahátíð í glugganum. Skyldu ekki litlu vofurnar vera orðnar þreyttar? Að minnsta kosti gleymdu þær að loka húsunum sínum og það varð ískalt í herberginu. I rökkrinu varð rúðan eins og silfurlit stjarna og svo kom myrkur og þá varð hún eins og stjarna sem hefur villst að heiman og vill komast inn í hús mannanna. Og allar vofurnar með síða hvíta hárið flautuðu á sínar gylltu flautur. En mennirnir og böm mannanna hafa heitt blóð og þola ekki kulda. Og pabbi Ljúfu tók stóran tréhlera og negldi fyrir gluggann. Og silfurstjarnan sást ekki framar og enginn flautuleikur heyrðist. Því Gluggavofan flutti með alla krakkana sína. Þau settust á bak vindfuglunum og flugu út í nóttina meðan við sváf- um. Kannske hafa þau fundið annað gamalt hús með sprungna glugga og kannske eigum við einhverntíma eftir að hitta þau. Því við fluttum líka úr húsinu og enginn veit hvar menn og vofur kunna að finnast. Og þegar ég sé gamalt hús horfi ég alltaf vandlega á það. Því kannske 38

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.