Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Page 50

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Page 50
- Viltu súkkulaði? spyr hún. Hún hristir blautt hárið, hengir ljósgráa jakkann sinn inn í skáp, fer inn í stofu og sest í stól á móti manninum. - Eg asnaðist til að fara inn á vídeóleiguna sem vinkona hennar mömmuermeð. Það varauðvitað sami söngurinn í henni og öllum öðrum. Hvort við séum enn í sömu íbúðinni. Hvort þú sért enn í sömu vinnunni. Hvort við ætlum nú ekki að fara að koma með eitt lítið. Maðurinn lítur upp. - Þessar andskotans kellingar, hvað kemur þeim við hvað við gerum? - Ég er orðin svo þreytt á þessu, segir konan, röddin er ofurlítið rám. Hún ræskir sig og kyngir. Maðurinn horfir á hana svolitla stund, svo snýr hann sér aftur að sjón- varpinu. Geltandi vélbyssur yfirgnæfa það sem konan segir þegar hún stendur upp. A sjónvarpsskjánum liggja blóðug lík í skógarrjóðri. Konan stendur á miðju stofugólfinu. - Talaðu við mig, segir hún. - Ég ætla að gá hvernig þessi mynd er, segir maðurinn. Hann starir beint fram, einbeitir sér að sjónvarpinu og rétt lítur út undan sér til kon- unnar þegar hún fer út úr stofunni. Hún er niðurlút. Ljóst hárið fellur fram og hylur andlitið. 48

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.