Nýja stúdentablaðið - 01.02.1947, Blaðsíða 7

Nýja stúdentablaðið - 01.02.1947, Blaðsíða 7
INGI R. HELGASON, stud. med.: ALÞJÓÐASAMBAND STÚDENTA (INTERNATIONAL UNION OF STUDENTS) í nóvembermánuði 1945 komu saman í London stúdentar frá 39 þjóðum til að ræða áhugamál sín. Þeir höfðu barist ldið við lilið í stirjöldinni gegn nasismanum og tengst órjúfandi vináttuböndum. Nú sáu þeir enga ástæðu til þess að hætta samstarfinu. Mörg vandamál steðjuðu að, þótt nasismanum hefði verið rutt úr vegi. Þeim vandmálum vildu stúdentar mæta með samstiltum kröftum sínum. Þeir vildu snúa bökum saman í barátlunni fyrir varanlegum friði, og þeir vildu taka þátt í endurreisninni og skipulagningu atvinnulífsins og menningarlífsins heima firir. Þess vegna ákváðu þeir að stofna til alsherjar alþjóðasambands stúdenta og kusu á þessu þingi í London nefnd til að sjá um undirbúninginn. Stofnþing hins níja sambands var svo háð í Prag í ágúst 1946, og voru þar saman komnir 305 fulltrú- ar frá 43 þjóðum firir um tvær og hálfa miljón fé- lagsbundinna stúdenta. Lög sambandsins voru end- anlega samþikt hinn 27. ágúst, og sá dagur er talinn fæðingardagur sambandsins. Stúdentaráð H. í. er aðili að sambandinu. Starfsemi þess er mjög víðtæk og vel skipulögð og má vænla mikils árangurs af henni. Utvarpað er frá aðalstöðvum sambandsins í Prag einu sinni í viku, og mjög vandað málgagn kemur út mánaðar- lega. (Fáanlegt bjá Stúdenlaráði). Mikil áhersla er lögð á að afla upplísinga um námsskilirði og aðbún- að stúdenta í hinum ímsu löndum, og þegar hefur samhandið hafist handa um töku fræðslukvikminda um menningarmál, sem senda á stúdentasamtökum himnastiga, en ckki hækju, við eilíft líf, en ekki út- bruna lífsins, við guðsbarnaréttinn, en ekki heimska náðarvon úr liendi hins sterka. Þær verða að stiðjast við kristindóminn, eiga upphaf silt og rök í tilgangi lífsins, og þá er sigurinn vís, og þá first. NÍJA STÚDENTABLAÐIÐ landanna. — Einnig ætlar samhandið að gangast firir kinnisferðum stúdenta til annarra landa og standa firir íþróttakepnum o. s. frv. Mikilvægur þátt- ur í starfi sambandsins er sú aðstoð, sem það hefur veitt og veitir stúdentum, sem illa eru settir í þeim löndum Evrópu, þarsem matvælaástandið er alvar- legast. Um tilgang sambandsins segir svo m. a. í lögum þess: a) SambandiÖ er málsvari líöræðissinnaðra stúdenta um allan heini, og mun sem slíkt veita stúdentum aðstoð sína í hagsmunabaráttu þeirra. h) Sambandið vill vinna að því, að öllu fólki, hvarsem er í heiminum, séu trigð réttindi og möguleikar til þess að öðlast þá mentun, sem hugur þess stendur til, án tillits til þjúðernis, kinferðis, efnahags, stjúrnmálaskoðana eða trúarbragða. Ennfremur vill sambandið stuðla að því, að efnalitlir stúdentar njúti stirks frá hinu opinbera, og allar kenslubækur og kensluáhöld verði úkeipis. c) Sambandið vill stuðla að náinni kinningu meðal stúd- enta í öllum líðfrjálsum löndum og auka þekkingu þeirra á öðrum þjúðum. d) Sambandið vill beita áhrifum sínum til þess að framfar- ir í vísindum verði kunngjörðar og hagníttar í þágu mannkinsins og heimsfriðarins. Stofnun þessara alþjóífasamtaka stúdenta er tákn- ræn firir þá tíma, sem við lifum á, og firir félagsleg- an þroska stúdentanna. Einkunnarorð sambandsins eru: Firir jrið og betri heim. Stúdentar fengu smjörþefinn af villimensku nas- ismans. Nú vilja þeir standa á verði um heimsmenn- inguna og vinna með öllum líðræðissinnuðum öflum að bættri sambúð þjóðanna og varðveislu friðarins. Þeir vilja ekki stríð aftur. Skulu hér að síðustu tilfærð nokkur atriði úr á- liktunum stofnþingsins frá 1946. Þessi atriði sína mjög vel, hverskonar samband er ltér á ferðinni: 5

x

Nýja stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.