Hlín - 01.01.1925, Side 6
I
4 Hlin
Því lífið er dagur í dýrlegri höll,
þar dauðlegir þegnskyldu inna.
Herganga’ á alheimsins orustuvöll,
þar etja menn kappi, þar berja þeir tröll;
en — þar þarf að vaka og vinna.
A R. S.
Fundargerð
aðalfundar »Sambands norðl. kvenna«, árið 1925.
Miðvikudag 1. júlí var sambandsfundur norðlenskra
kvenna (hinn 12.) settur og haldinn i barnaskólahúsinu á
Siglufirði.
I. Forstöðukona Kristbjörg Jónatansdóttir, Akureyri,
setti fundinn og stýrði honum. Nefndi til skrifara Pórdísi
Ásgeirsdóttur, Húsavík, og Laufeyju Pálsdóttur, Akureyri.
Ávarpaði hún fundarkonur nokkrum vel völdum kvéðju-
og hvatningarorðum, lagði sjerstaklega áherslu á að kon-
ur jafnan kæmu fram með velvild og skilningi gagnvart
andstæðingum sínum í hinum ýmsu málum þeirra og
ljetu sjer þau víti að varnaði verða, sem nú eitra og
óprýða stjórnmál og blaðamensku landsins. Pví næst
skýrði hún frá störfum stjórnarinnar á árinu. Hafði stjórn-
inni tekist að fá sjera Magnús Helgason til að ferðast
um sambandssvæðið mánaðartíma og halda þar fyrirlestra
um uppeldismál. Kóstaði sambandið ferð hans, en sjálfur
starfaði hann endurgjaldslaust. — Ungfrú Sigurborg Krist-