Hlín - 01.01.1925, Blaðsíða 12
10
Hlin
Avarp.
Sent fjelagsdeildum S. N. K. veturinn 1923.*
Stjórn Sambands norðlenskra kvenna sendir hjer með
fjelagsdeildunum kæra kveðju sína og bestu óskir um
framtakssemi og samheldni i fjelagsskapnum á hinu ný-
byrjaða ári. Stjórnin vill jafnframt mælast til þess, að fje-
lagsdeildirnar athugi og taki til umræðu á fundum sínum
þau mál sem verða á dagskrá Sambandsfundar á Akur-
eyri í júlí 1923 og geri ályktanir og samþyktir um þau
sem þurfa þykir. Aðalfundi er hinn mesti styrkur í sam-
þyktum frá fjelagsdeildunum. — Vjer viljum ennfremur
mælast til þess, að deildirnar sendi aðalfundi starfsskýrslu
ár hvert, sem lesa megi upp, ef enginn fulltrúi mætir
fyrir deildina. Hins vegar væntum vjer þess fastlega, að
deildirnar geri sitt ýtrasta til að senda fulltrúa á fundinn.
Samvinna deildanna ber því að eins góðan árangur, að
fjelagar geti sem flestir átt kost á að kynnast. Sambandið
er stofnað í þeim tilgangi að reyna að draga úr einangr-
un og einstæðingsskap fjelagsdeildanna og veita til þeirra
fjöri og lífi. — Ársritið „Hlina á eflaust drýgsta þáttinn
í kynningu og samvinnu fjelagsdeildanna. Konur hafa
látið sjer mjög ant um ritið, bæði með því að skrifa í
það og kaupa það, og eiga þær hinar bestu þakkir skilið
fyrir það. Sjerstaklega viljum vjer þakka útsölukonum
Hlinar sem best fyrir góða aðstóð og ágæta skilsemi,
án þessarar hjálpar hefði ritið orðið að hækka í verði,
en að það haldist í sínu verði álítum við nauðsynlegt til
þess að það geti náð sem mestri útbreiðslu.
Þegar ræða er um aukna kynningu og samvinnu á
* Þetta ávarpsbrot getur e. t. v. átt erindi til kvenfjelaga úti um
land, sem eru að byrja á samvinnu í einhverri mynd.