Hlín - 01.01.1925, Blaðsíða 15
Hlin Í3
kr., sem fjelagið hefir Iofað til væntanlegrar samkomu-
hússbyggingar á Seyðisfirði.
Auk áðurnefndra fjárframlaga hefir fjelagið saumað og
gefið fátæklingum í bænum töluvert af fatnaði. Handa-
vinnuskóla hafði fjelagið í allmörg ár fyrir stúlkubörn
8—14 ára og gafst vel.
Fjelagið hefir aflað sjer fjár með því að gangast fyrir
sjónleikjum, dansskemtunum, hlutaveltum o. þ. h. — Til
eflingar ellihælissjóði fjelagsins eru seld minningarspjöld
og gefur sú sala talsverðar tekjur á hverju ári.
Aðaláhugamál fjelagsins er nú að koma upp heimili
fyrir gamalmenni, og á það mál marga góða stuðnings-
menn. í fyrra áskotnaðist sjóðnum 500 kr. dánargjöf,
sem einn af heiðursfjelögunum, frk. Kristín Wiium, hafði
ánafnað sjóðnum í erfðaskrá sinni. Áður hafði hún gefið
sjóðnum 160 kr. Bera þessar gjafir Ijósan vott um hinn
sjerstaka áhuga hinnar látnu fyrir málefninu, enda var
hún ein þeirra, sem mestan þátt áttu í því að sjóðurinn
var stofnaður.
F. h. Kvenfjelagsins >Kvik«.
Guðrún Gísladóítir. Hólmfr. Jónsdóttir.
Kvenfjelag Seyðisfjarðar.
Fjelagið var stofnað árið 1902, hinn 25. nóvember, af
29 konum þessa bæjar.
Tilgangur fjelagsins er að gleðja fátæka og veita þeim
hjálp eftir efnum þess, bæði með smágjöfum og árlegri
jólatrjesskemtun, sem haldin er fyrir öll börn bæjarins
og gamalmenni.
Árið 1907 stofnaði fjelagið sjúkrasjóð, sem ber nafnið
»Sjúkrasjóður Kvenfjelags Seyðisfjarðar«. Var fyrsta stofn-
fje hans 100 króna gjöf frá frú Jóhönnu Ketilsdóttur,
fyrstu forstöðukonu við sjúkrahúsið á Seyðisfirði, sem