Hlín


Hlín - 01.01.1925, Side 22

Hlín - 01.01.1925, Side 22
Hlin 20 sem liggur norður og niður« og eyddu sjálfir menningu sinni, margra ára ávexti mikillar og víðtækrar þekkingar. — Þess vegna, þegar við íslendingar ætlum að efla sanna menningu okkar, megum við ekki gleyma þessum mikla máttarviði hennar, bróðurkærleikanum, svo ekki verði ávextir þekkingarinnar eitruð eyðilegging alls þess besta sem við eigum. Ein grein bróðurkærleikans er liknarstarfsemi. Jeg er ekki í efa um það, að sumum -þyki jeg taka hjer of djúpt í árinni: að líknarstarf sje einn þáttur sannrar menningar. Pví ekki er skilningurinn á því starfi meiri en það, að ekki ómerkur maður hefir látið það sjást á prenti eftir sig, að líknarfjelög væru, sum að minsta kosti, stofnuð til þess, að fáeinir menn eða konur gætu látið ofurlítið á sjer bera, þyrftu að hafa eitthvað til að vasast í, og að við ættum að tryggja okkur svo vel fjárhagslega, að líkn- arfjelög mættu hverfa úr sögunni. En þar til er því að svara, að líknarfjelög eru langoftast stofnuð á tíma neyð- arinnar, þegar mennirnir hafa þurft mest á bróðurkærleik og hjálp að halda. Mætti sýna ótal dæmi þess, því alt af eiga einhverjir þann hugsjónahimin að »ljetta bróður síns byrðic. Og í öðru lagi, hve vel sem menn verða trygðir fjárhagslega einhverntíma í framtíðinni, verðum við að haga okkur eftir þeim lífsskilyrðum, sem nú eru fyrir hendi, og á meðan veikindi og sorgir heimsækja menn- ina, þarfnast þeir hjúkrunar og samúðar. Þess vegna má líknarstarfsemin ekki hverfa, og er áreiðanlega öflugur þáttur sannrar menningar. — Eitt af okkar bestu skáld- um segir líka: >Hvað er frelsi þitf, bygð? Það er drenglyndi og dygð, það er dáðin í siðferði þjóða. Hvað er menning þín sjálfs, uns þú fúslega og frjáls setur fjör þitt í veð hinu góða?

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.