Hlín


Hlín - 01.01.1925, Side 27

Hlín - 01.01.1925, Side 27
Hlin 25 mentunar, velgengni og kjarks hvers manns og hvers lands.< Pessum orðum fór þá þessi mikli þjóðskörungur okkar um fjelagsskap, hann hefir skilið og kunnað að meta verðgildi hans fyrir 80 árum, áður en veruleg samtök eða fjelagsskapur þektust hjer á landi. Við Norðlendingar eigum eina sameiginlega hugsjón, einn sameiginlegan hugsjónahimin, hvernig sem gengur nú að byggja turninn þangað upp. Það fer eftir skilningi okkar á málefninu, fórnfýsi okkar, menningu og viljaþréki. — Pessi hugsjón okkar er sú að koma upp heilsuhæli á Norðurlandi. Við vitum það öll og skiljum, að mörg mannslíf missast fyrir það, að við þurfum að senda sjúkl- inga langan veg til að komast á heilsuhæli: — Það ferða- lag fer oft með seinustu kraftana, svo að engin batavon er, þegar þangað er komið. Við vitum það líka, að heilsu- hæli kostar mikið fje, og nú er við ramman reip að draga, sem er fjárskortur í landinu. En ekkert er okkur ómögu- legt, ef við myndum fjelagsskap um þetta mál, öflugan og menningarlegan í hverjum einasta hreppi á Norður- landi, þar sem fjelagarnir verða vakandi og starfandi menn og konur. — Þessum fjelagsskap mætti haga á þann hátt, að menn miðuðu aldur fjelagsdeildanna við 5 eða 10 ár, og að þeir sem vildu ganga í deildirnar, ákveði sjálfir tillög sín. Minsta fjelagsgjald á ári væri 1.00 og svo hærra eftir vilja og getu manna. — Mætti þá á einu eða tveimur árum safna skýrslum um hvað fæst af fje á þennan hátt, og taka lán upp á tvo hluti af því fje, sem loforð fást um, til þess að efla sem fyrst og á hagkvæm- astan hátt þann sjóð, sem við ætlum að bjóða fram til byggingar fullkomnu heilsuhæli á Norðurlandi. — Jeg veit að mörgum vex þetta máske í augum vegna fjár- hagsörðugleika. — En það var lika hart í ári, þegar for- feður okkar stofnuðu til líknarstarfs að Pverá í Laxárdal og lögðu fram fje til þess að bjarga mörgum mannslíf-

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.