Hlín - 01.01.1925, Side 35
Hlk 33
má nefna, að fyrstu árin eftir að Listigarður Akureyrar
var yrktur, var þar að eins daglaunavinna og ígripavinna
bæjarbúa. En það var brátt auðsýnilegt, að garðurinn
gat ekki þrifist með því móti. Garðyrkjukonur hafa nú
starfað þar síðustu 8 árin, og hefir víst engan iðrað, að
sú breyting var gerð.
»En«, segja menn, »þetta verður sveitum og kauptún-
um ofvaxið. Undir þeim bagga getum við ekki risið.« —
Jú, þessa vinnukonu getur sveitin hæglega haldið, ef
hún vill. — En það þarf að vera góð samvinna um
þetta, eins og annað sem samtök eru gerð um, góð stjórn
og holl stefna í starfinu. — Framkvæmdarnefnd eða fje-
lag sem rjeði stúlkuna, stjórnaði umferðarstarfi hennar,
gyldi henni kaup o. s. frv.
Það vill nú svo vel til að rekspölur er að komast á
málið. Það var einmitt samþykt á síðasta búnaðarþingi
samkvæmt áskorun frá Sambandi nórðlenskra kvenna
og Ungmennafjel. sambandi Árness- og Rangárvallasýslu
»Skarphjeðni«, að ætla árlega nokkurt fje til umferðar-
kenslu í garðyrkju og matreiðslu, greiða alt að lh kostn-
aðar, og varð fjelagið við þeirri beiðni.* Retta er vel af
stað farið og rjett. Það sjá allir, að B. f. er einmitt sú
stofnun sem á að leggja þessari starfsemi lið, og ekki
sæi jeg eftir að hún legði fram alt að 5000 krónum ár-
Iega til umferðargarðyrkjukenslu í sveitum og kauptúnum
(og aðrar 5000 til umferðarmátreiðslukenslu eða hús-
mæðrafræðslu). F*að er að eins V20 af því fje sem fje-
laginu er veitt á fjárlögum. Ekki er nú til mikils mælst,
þótt það gengi til að bæta og fegra heimilin. Við verðum
að gera kröfur fyrir heimilin, alt er undir því komið að
þau verði viðunanleg.
Ungmennafjelög, búnaðarfjelög og kvenfjelög, bæjar-
* B. í. hefir 2 undanfarandi ár greitt 'h kostnaðar við umferðar-
kenslu i matreiðslu á Suður- og Vesturiandi,
3